staðsetning vindorkuvera í landslagi og náttúru Íslands.
Hæstv. forseti. Ég er ekki sammála því að við eigum að fella brott flokk 3. Það er ekki eins og almannahagsmunir séu ekki metnir í flokki 3, auðvitað er það gert í flokki 3. Það er bara gert á öðrum stað í kerfinu en með aðkomu rammaáætlunar. Það er gert á sveitarstjórnarstiginu. Það er gert í gegnum mat á umhverfisáhrifum. Hér er verið að búa til kerfi sem grófflokkar það hvar á landinu við ætlum ekki að stunda nýtingu á vindorku og verið að ákveða hvar eigi að skoða það. Sú skoðun á auðvitað bæði við um flokka 2 og 3. Það er alger einföldun og algjör misskilningur að halda því fram að flokkur 3 þýði að þar séu ekki metnir almannahagsmunir. Það er bara bull og vitleysa og ekki verið að ýta ferli rammaáætlunar til hliðar. Það er verið að breyta kerfinu og laga það að því sem telja má skynsamlegt. Gleymum því ekki, hæstv. forseti, að með þessu fyrirkomulagi erum við að taka frá risastór svæði á Íslandi sem ekki munu leyfa vindorkuvirkjanir og það eru risastór svæði þar sem það verður metið af rammaáætlun sem grófflokkun og síðan fer það í hið almenna mat sem þarf að eiga sér stað þegar kemur að skipulagsgerð og mati á umhverfisáhrifum. Að mínu mati erum við hér að færa löggjöfina til betri vegar. Á sama tíma og við erum að horfa til þess að auka náttúruvernd og vernd þeirra svæða sem verðmætust eru gegn áhrifum frá vindorku þá erum við líka að einfalda málsmeðferðina þar sem ásættanlegt er að ráðast í þetta.