151. löggjafarþing — 77. fundur,  13. apr. 2021.

staðsetning vindorkuvera í landslagi og náttúru Íslands.

707. mál
[22:26]
Horfa

Guðjón S. Brjánsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að færa okkur þessi tvö þingmál í hús. Þau haldast í hendur, finnst mér hljóta að vera, eins og systkin á ólíku reki. Vindorkan er auðvitað heillandi viðfangsefni og að mörgu leyti mjög ákjósanlegur orkukostur og hefur sérstöðu. En ég tek undir það sem fram hefur komið, það er mjög nauðsynlegt að skapa um þetta skýran ramma snemma, að við látum ekki reka fyrir vindi og við höfum gegn gegnsæi varðandi nýtingu og uppbyggingu.

Í frumvarpinu, svo maður grauti þessu dálítið saman, kemur fram að bæði Skotar og Norðmenn hafi nálgast þetta viðfangsefni með sínum hætti. Það væri fróðlegt að heyra frá ráðherra um það hvaða reglur gilda t.d. um þetta í Danmörku. Það er sú mynd sem er kannski sterkust í huga okkar því að þar sá maður vindmyllur fyrst og að þær voru áberandi í umhverfinu. Gæti hæstv. ráðherra varpað einhverju ljósi á það hvaða reglum þeir fylgja í stuttu máli?

Yrði það að áliti ráðherra mjög afdrifaríkt ef vindorkan yrði sett utan ramma eða yrði ekki látin lúta lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun? Hvaða áhrif gæti það haft? Þyrfti það endilega að vera mjög neikvætt?