151. löggjafarþing — 77. fundur,  13. apr. 2021.

staðsetning vindorkuvera í landslagi og náttúru Íslands.

707. mál
[22:29]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Hv. þingmaður spurði hvað mælti gegn því að vindurinn væri alfarið fyrir utan rammaáætlun. Svarið við því er að ég tel skynsamlegra að við mótum og þróum aðferðafræðina við vindinn innan þess ramma sem við höfum í rammaáætlun vegna þess að þar erum við með verkefnisstjórn og faghópa sem hafa þekkingu til að meta og koma með tillögur til ráðherra í þeim tilfellum sem landsvæði lenda í flokki 2. Ef við værum með það alfarið fyrir utan þá værum við í rauninni að sleppa þessu skrefi sem ég tel mikilvægt, sérstaklega út frá náttúruverndarsjónarmiðum. Við erum að flokka svæðin í flokk 1, 2 og 3 út frá því hvað er verðmætast. Ef þar væri engin flokkun værum við kannski að skoða stóra vindmyllugarða t.d. á friðlýstum svæðum. Ég væri ósáttur við það, sama með svæði sem eru á heimsminjaskrá UNESCO o.s.frv., þannig að það svarar því kannski.

Varðandi Danmörku verð ég að viðurkenna að ég þekki það svo sem ekki sérstaklega. Það var ekki neitt sem við lögðumst í skoðun á við gerð frumvarpsins og þingsályktunartillögunnar, en þar spilar náttúrlega inn í að það er mjög þéttbýlt í Danmörku, eins og við þekkjum. Þar er beislun vindorku mikið að færast út á sjó. Það er að gerast víða og kannski verður það þróunin hérlendis líka að vindorkuver fari í auknum mæli út á sjó. Og kannski væri það bara ekkert slæmt.