staðsetning vindorkuvera í landslagi og náttúru Íslands.
Virðulegur forseti. Það kann nú að vera að fyrirspurn mín hafi verið ógreinileg og ég sé svolítið að fálma í þokunni. En varðandi vindorkuna og varðandi þessi mannvirki, þau eru stór og há og fyrirferðarmikil og hv. þm. Andrés Ingi Jónsson hefur ítrekað bent á að þetta séu risamannvirki. En það kemur í ljós að þessi orkukostur er að verða stöðugt hagkvæmari og það eiga sér stað tæknilegar breytingar sem gera þennan kost mjög samkeppnishæfan miðað við hefðbundna vatnsvirkjanakosti. Ég held að það sé ekki spurning um að við eigum að skoða þetta enda hefur reynslan af vindmyllugerð, svo lítil sem hún nú er á Íslandi, verið raunar umfram væntingar, ef ég skil rétt, þar sem vindurinn hefur reynst mönnum fullmikill þar sem mest hefur gengið á, t.d. undir Hafnarfjalli.
Auðvitað hafa þessi mannvirki áhrif á umhverfið og eru áberandi í því. En mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hversu mikil mæling hefur átt sér stað hér á landi. Hafa einhver möguleg svæði verið tekin út? Hvað eru þau mörg? Hvað getum við séð fyrir okkur? Menn tala um vindmyllugarða, ég þekki umræðuna úr Gilsfirði, og í Húnavatnssýslum hafa menn verið að benda á þetta. Ég held að ég fari rétt með að það hafi verið gerðar einhverjar vindmyllumælingar með þetta í huga á þessum svæðum.