151. löggjafarþing — 77. fundur,  13. apr. 2021.

staðsetning vindorkuvera í landslagi og náttúru Íslands.

707. mál
[22:33]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (andsvar):

Hæstv. forseti. Við málsmeðferð 4. áfanga rammaáætlunar komu fram 30–40 hugmyndir, mjög mismótaðar, að vindorkuverum úti um allt land. Þar af voru teknar, ef ég man rétt, fimm til skoðunar í 4. áfanga. Tvær voru til skoðunar í 3. áfanga, vindorkuver við Búrfell og við Blöndu, þannig að eitthvað er til um rannsóknir á áhrifum þessa í tengslum við gerð rammaáætlunar. Þar eru þá líka mælingar á því hversu mikla orku þetta mun gefa og þar fram eftir götunum. Við erum að fá meiri og meiri þekkingu á þessum málum, bæði út frá því hvað þetta getur mögulega gefið af sér í orku og áhrifum á umhverfi og náttúru. En ég held að það skipti mjög miklu máli að við séum með þetta kerfi utan um þetta og varðandi það kerfi þarf að taka mið af náttúruverndinni, það þarf að taka mið af umhverfismálunum, það á að vera meginlínan. Náttúruverndin á að vera í fyrsta sæti og ég vil meina að þetta frumvarp endurspegli það.