151. löggjafarþing — 77. fundur,  13. apr. 2021.

staðsetning vindorkuvera í landslagi og náttúru Íslands.

707. mál
[22:35]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Virðulegi forseti. Ég hafði ekki hugsað mér að taka til máls umfram andsvör í þessu máli en ég get ekki gert annað eftir orð ráðherra í síðara andsvari hans sem ég gat ekki brugðist við þá. Ráðherra sagði, með leyfi forseta:

„Það er alger einföldun og algjör misskilningur að halda því fram að flokkur 3 þýði að þar séu ekki metnir almannahagsmunir. Það er bara bull og vitleysa og ekki verið að ýta ferli rammaáætlunar til hliðar.“

Það truflar mig svo sem ekki að ráðherrann skensi svona um skoðanir mínar eða það sem ég segi, en það sem honum þykir einföldun, misskilningur, bull og vitleysa eru atriði sem ég hafði upp úr umsögn faghóps tvö í 4. áfanga rammaáætlunar, sama faghóps og ráðherrann sagði síðan að hefði þekkinguna til að meta hluti en er líka að hans sögn að einfalda, misskilja, bulla og fara með vitleysu.

Ég ætla að lesa, með leyfi forseta, smá kafla úr umsögn faghóps tvö, þar sem búið er að færa rök fyrir því að flokk 3, flokkinn þar sem virkjanir eru á grænu ljósi, eigi að fella úr þessum ramma. Þar segir, með leyfi forseta:

„Með hliðsjón af framansögðu er óæskilegt að flækja málið með því að nota mismunandi ferla við mat á áhrifum vindorkuvera, auk þess sem það landsvæði sem fellur hvorki undir svæði 1 eða svæði 2 er í raun ekki víðfeðmt.

Rammaáætlun er verkfæri sem stjórnvöld bjuggu til fyrir rúmum tveimur áratugum í því skyni að greiða úr ágreiningi sem getur skapast af því að ólíkir hagsmunahópar sækja í sömu auðlindir þjóðarinnar. Þar er horft heildstætt á öll þau áhrif sem virkjanir geta haft, hvort sem er á náttúru eða samfélag, og með heildarhagsmuni landsmanna að leiðarljósi en ekki hagsmuni t.d. einstakra sveitarfélaga eða einstakra hagsmunahópa. Faghópur 2 telur rammaáætlun því vera mikilvægt og ómissandi tæki til þess að uppbygging virkjana þjóni heildarhagsmunum landsmanna — ekki hagsmunum einstakra hagsmunahópa né sveitarfélaga — og til að tryggt sé að horft sé heildstætt á öll áhrif sem virkjanir geta skapað.“

Þegar ég fjallaði um þessa umsögn faghópsins í andsvari mínu sagði ég að það væri mjög mikilvægt að halda áfram á þeirri braut sem unnið hefur verið undanfarin ár og standa vörð um rammaáætlun sem stjórntækið sem meti almannahagsmuni í tengslum við virkjanir. Það er alvarlegt, virðulegur forseti, að ráðherra umhverfismála brigsli faghópi í rammaáætlun um einföldun, misskilning og bull og vitleysu. Ég ætla að vona að þetta hafi bara verið mistök þar sem ráðherrann hafi ætlað að koma höggi á þann sem hér stendur en óvart slett skítnum á fólk sem stendur honum nær.