hollustuhættir og mengunarvarnir o.fl.
Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, um breytingu á lögum um meðhöndlun úrgangs og lögum um úrvinnslugjald. Frumvarp þetta er til innleiðingar á hringrásarhagkerfinu. Megintilgangur frumvarpsins er að innleiða í íslenskan rétt fjórar tilskipanir Evrópusambandsins, en það eru: Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/850 frá 30. maí 2018 um breytingu á tilskipun 1999/31/EB um urðun úrgangs, tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/851 frá 30. maí 2018 um breytingu á tilskipun 2008/98/EB um úrgang, tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/852 frá 30. maí 2018 um breytingu á tilskipun 94/62/EB um umbúðir og umbúðaúrgang, tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/904 frá 5. júní 2019 um að draga úr áhrifum tiltekinna plastvara á umhverfið. Lýkur þá upptalningu á tilskipunum.
Jafnframt eru lagðar til í frumvarpinu breytingar á framleiðendaábyrgð á rafhlöðum og rafgeymum sem og varðandi skilagjald á ökutækjum.
Frumvarpið er lagt fram í kjölfar opins kynningarferlis í samráðsgátt Stjórnarráðsins í janúar síðastliðnum, og fór reyndar hluti af frumvarpinu í samráðsgátt ári áður. Markmiðið með hringrásarhagkerfi er að draga úr auðlindanotkun, auka líftíma auðlinda jarðar og koma í veg fyrir að efni og hlutir hverfi úr hagkerfinu sem úrgangur. Þannig eru fullnægjandi úrgangsforvarnir og úrgangsstjórnun mikilvægur hluti þess sem þarf að vera til staðar í virku hringrásarhagkerfi.
Í framangreindum tilskipunum eru settar fram nýjar og endurskoðaðar reglur um úrgangsstjórnun. Takmarkið var að endurbæta reglur Evrópusambandsins þannig að þær stuðli sem best að myndun hringrásarhagkerfis, sem og að bæta núverandi úrgangsstjórnun. Sama á við hér á landi þar sem ljóst er að árangur í úrgangsstjórnun hefur ekki að öllu leyti verið nægjanlegur. Sem dæmi má nefna að endurvinnsla heimilisúrgangs var einungis 28% árið 2018, en sett markmið fyrir síðasta ár var hins vegar 50%. Á komandi árum verður markmiðið hækkað í 65% og því ljóst að bregðast þarf hratt við og gera breytingar á úrgangsstjórnun hér á landi. Með frumvarpinu er ætlunin að stíga frekari skref í átt að hringrásarhagkerfi.
Eftirfarandi eru helstu breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu á lögum um meðhöndlun úrgangs:
Í fyrsta lagi er lagt til að bætt verði við lögin því markmiði að skapa skilyrði fyrir myndun hringrásarhagkerfis auk þess sem lagðar eru til breytingar á skilgreiningum hugtaka.
Í öðru lagi er lagt til að komið verði á skyldu til sérstakrar söfnunar fleiri úrgangstegunda en í gildandi lögum sem og notkun samræmdra merkinga. Með tilkomu skyldunnar til sérstakrar söfnunar er nauðsynlegt að flokkun úrgangs verði samræmd á landsvísu sem er til þess fallin að auðvelda flokkun heimilisúrgangs. Í reglugerð verður kveðið nánar á um útfærsluna, en gert er ráð fyrir að hver úrgangstegund fái sitt merki og sinn einkennislit og að merkingarnar beri að nota við alla meðhöndlun úrgangs alls staðar á landinu.
Í þriðja lagi er lögð til sú skylda að einstaklingum og lögaðilum verði gert skylt að flokka úrgangstegundir sem er safnað sérstaklega. Virk þátttaka almennings og lögaðila í flokkun er undirstöðuatriði við sérstaka söfnun úrgangs.
Í fjórða lagi er gert ráð fyrir að sérstök söfnun á lífúrgangi, plasti og pappa og pappír fari fram innan lóðar í þéttbýli hjá íbúðarhúsum og lögaðilum. Markmiðið með þessari breytingu er að auka þjónustu við íbúa og stuðla að aukinni endurvinnslu á heimilisúrgangi.
Í fimmta lagi verður ráðherra heimilt að veita undanþágu frá kröfu um sérsöfnun úrgangs að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, enda ljóst að söfnun úrgangs í dreifbýli kallar á ólíkar lausnir.
Í sjötta lagi er í frumvarpinu lagt til að skylt verði að flokka rekstrarúrgang. Þar er lagt til að byggingar- og niðurrifsúrgangur verði að lágmarki flokkaður í tiltekna flokka, en slík flokkun ætti meðal annars að stuðla að betri meðferð og nýtingu þess háttar úrgangs og draga úr losun óæskilegra efna út í vatn og jarðveg.
Í sjöunda lagi er gert ráð fyrir þeirri meginreglu að óheimilt verði að senda úrgang úr sérstakri söfnun til brennslu eða urðunar. Er hér um mikilvægt loftslagsmál að ræða. Þessi breyting er í samræmi við markmið tilskipunarinnar um að draga úr urðun úrgangs, sér í lagi úrgangs sem hentar til endurvinnslu eða annarrar endurnýtingar, sem styður við innleiðingu hringrásarhagkerfis.
Að lokum eru lagðar til breytingar sem varða heimildir sveitarfélaga til innheimtu gjalds fyrir meðhöndlun úrgangs, m.a. að þeim verði skylt að innheimta gjald sem næst raunkostnaði við viðkomandi þjónustu. Samkvæmt gildandi lögum hafa sveitarfélög heimild til þess að ákveða fast gjald á hverja fasteignaeiningu fyrir öllum kostnaði sveitarfélagsins við söfnun og meðhöndlun úrgangsins. Í frumvarpinu er lagt til að þessi heimild sveitarfélaga verði afmörkuð nánar og lagt til að sveitarfélögum verði heimilt að ákveða gjaldið sem fast gjald á hverja fasteignareiningu til þess að innheimta allt að 25% af heildarkostnaði sveitarfélagsins við söfnun og meðhöndlun úrgangs. Jafnframt er lagt til að sveitarfélagi verði heimilt að færa raunkostnað á milli úrgangsflokka í því skyni að stuðla að hringrásarhagkerfi. Með því móti geta sveitarfélög hvatt til aukinnar endurvinnslu með því að færa kostnað vegna söfnunar og annarrar meðhöndlunar endurvinnsluefna yfir á gjaldtöku vegna blandaðs úrgangs.
Í frumvarpinu er síðan lögð til framlengd framleiðendaábyrgð fyrir allar umbúðir. Framleiðendaábyrgð felur í sér að framleiðendur og innflytjendur bera ábyrgð á viðkomandi vöru þegar notkun hennar er lokið og hún er orðin að úrgangi. Úrvinnslugjald er lagt á viðkomandi vöru til að standa undir þeim kostnaði sem hlýst af meðhöndlun viðkomandi úrgangs og Úrvinnslusjóður sér um framkvæmdina. Samkvæmt gildandi lögum er lagt úrvinnslugjald á pappa-, pappírs- og plastumbúðir. Í frumvarpinu er hins vegar lagt til að úrvinnslugjald verði að auki lagt á gler-, málm- og viðarumbúðir.
Í frumvarpinu er einnig lögð til útfærsla á framkvæmd framleiðendaábyrgðar á iðnaðarrafhlöðum og iðnaðarrafgeymum sem notuð eru til að knýja ökutæki. Lagt er til að framleiðendur skuli vera skráðir í skráningarkerfi framleiðenda og innflytjenda hjá Umhverfisstofnun eins og gildir um framleiðendur annarra rafhlaða og rafgeyma. Þá er framleiðendum og innflytjendum gert skylt að taka á móti notuðum iðnaðarrafhlöðum og iðnaðarrafgeymum gjaldfrjálst.
Enn fremur eru lagðar til breytingar á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir og lögum um úrvinnslugjald vegna framleiðendaábyrgðar á tilteknum plastvörum. Þar á meðal eru veiðarfæri úr plasti, tiltekin matarílát og umbúðir utan um matvæli, drykkjarílát, burðarpoka, blautþurrkur, blöðrur og tóbaksvörur með síum.
Síðan eru lagðar til breytingar í frumvarpinu til þess að koma til móts við ábendingar varðandi tekjur Úrvinnslusjóðs.
Að lokum er rétt að benda á að frumvarpið tengist aðgerðaáætlun í loftslagsmálum. Árið 2018 var losun gróðurhúsalofttegunda frá meðhöndlun úrgangs u.þ.b. 5% af heildarlosun Íslands án landnotkunar. Rekja má yfirgnæfandi hluta framangreindrar losunar frá meðhöndlun úrgangs til urðunar, eða 95%. Með frumvarpinu er ætlunin að draga verulega úr urðun úrgangs enda er það talið vera mikilvægasta loftslagsaðgerðin er lýtur að úrgangsmálum sem hægt er að grípa til hér á landi. Að mati ráðuneytisins mun frumvarpið hafa í för með sér óveruleg kostnaðaráhrif fyrir ríkissjóð.
Virðulegi forseti. Ég hef hér rakið meginefni þessa frumvarps og legg til að frumvarpinu verði að lokinni 1. umr. vísað til hv. umhverfis- og samgöngunefndar.