151. löggjafarþing — 77. fundur,  13. apr. 2021.

hollustuhættir og mengunarvarnir o.fl.

708. mál
[22:47]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka ráðherranum framsöguna og málið. Hér er ýmislegt sem horfir til töluvert betri vegar í úrgangsmálum. En mig langar að spyrja ráðherrann hvort hér sé ekki gullið tækifæri fyrir Ísland að gera meira en bara að innleiða tilskipanir sem koma frá Evrópusambandinu, taka forystu og ganga lengra en Evrópusambandið á ákveðnum sviðum og beina sjónum okkar að úrgangi sem er svo auðvelt að ná utan um hér á landi. Það væri t.d. hægt að setja úrvinnslugjald á fiskikör eða rúlluplast, það er auðveldara að ná utan um þann úrgang hér á landi en víðast hvar annars staðar og gæti skilað töluverðum árangri.

Mig langar að velta því upp með ráðherranum hvort þetta hafi verið skoðað innan ráðuneytisins og ef ekki þá tökum við það kannski til athugunar í umhverfis- og samgöngunefnd. Þá vil ég spyrja ráðherra út í það sem stundum hefur verið nefnt stærsti plastvandinn, sem er önnur úrgangstegund sem er algengari á Íslandi en víðast hvar, en það eru veiðarfæri og þá sérstaklega þá staðreynd að útgerðin hefur haft sérstakan samning við Úrvinnslusjóð og kannski er einfalt að segja að endurvinnsla á veiðarfærum sé í tómu tjóni. Ég spyr hvort verið sé að taka á þeirri stöðu með þessu frumvarpi.