151. löggjafarþing — 77. fundur,  13. apr. 2021.

hollustuhættir og mengunarvarnir o.fl.

708. mál
[22:50]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Hv. þingmaður spyr: Getum við ekki gert betur en Evrópusambandið? Svar mitt við því er: Jú, það eigum við vel að geta gert. Við erum hins vegar, eins og staðan er í dag, talsvert á eftir, eins og kom fram í framsögu minni, þar sem við erum einungis með 28% endurvinnslu á heimilisúrgangi en eigum að vera í 50%. Í frumvarpinu er gengið örlítið lengra en tilskipanirnar þegar kemur að skyldu um sérsöfnun við húsvegg í þéttbýli. Þar erum við að setja plast og pappa og pappír innan lóðar auk lífúrgangsins, en í tilskipununum er bara skylda varðandi lífúrganginn. Við erum líka að flýta sérsöfnun á lífúrgangi til 1. janúar 2023 en samkvæmt tilskipuninni er hann til 31. desember 2023 þannig að hér er kannski um að ræða útfærsluatriði á innleiðingu tilskipananna en þær eru þó alla vega í rétta átt.

Svo tek ég bara undir það með hv. þingmanni að það er mikilvægt að fara heildstætt yfir hvaða fleiri plastvörum má koma undir framleiðendaábyrgðina og þar með í umsýslu Úrvinnslusjóðs. Það er eitthvað sem við erum byrjuð að skoða varðandi plast og í ljósi þess er líka ástæða til að banna markaðssetningu á fleiri gerðum plasthluta en gert var við lagasetninguna í fyrra. Í síðara svari við spurningu hv. þingmanns kem ég að samningi sjávarútvegsins við Úrvinnslusjóð.