151. löggjafarþing — 77. fundur,  13. apr. 2021.

hollustuhættir og mengunarvarnir o.fl.

708. mál
[22:54]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (andsvar):

Hæstv. forseti. Samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef frá Úrvinnslusjóði hefur staðið yfir endurskoðun á samningnum við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi hvað varðar veiðarfærin. Ég er ekki alveg klár á því hvort sú vinna er á lokametrunum en ég veit að það er talsvert síðan hún byrjaði og átt hefur sér stað heilmikil umræða á milli þessara tveggja aðila. Ég tók fram í framsöguræðu minni hér áðan að nú verður skylda að setja plastveiðarfærin undir framleiðendaábyrgðina. Ég held að það sé mjög jákvætt skref fram á við. Ég tek undir þá almennu reglu sem hv. þingmaður nefnir hér, um að sá eigi að borga sem mengi. Ákvæði frumvarpsins bera þess merki, sérstaklega þar sem við erum að horfa til breyttrar gjaldtöku sveitarfélaganna, þar sem innleitt verður kerfi þar sem við borgum fyrir það sem við hendum. Jafnframt fá sveitarfélögin frelsi til þess að leggja gjaldið í auknum mæli á þann úrgang og þær tunnur sem bera þá blandaða úrganginn. Mig langar svo að segja, varðandi þrepaskiptinguna sem hv. þingmaður nefndi hér, að gert er ráð fyrir því að það verði gert. Ég verð að viðurkenna að ég man ekki alveg hvort það er inni í breytingum á frumvarpinu um úrvinnslugjaldið eða hvort það er reglugerðarmál. Mig minnir að það sé reglugerðarmál en það er einmitt það sem á að gera og það er rétta leiðin.