151. löggjafarþing — 78. fundur,  14. apr. 2021.

störf þingsins.

[13:04]
Horfa

Guðmundur Andri Thorsson (Sf):

Virðulegi forseti. 2%. Könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands sýnir að andstæðingar sóttvarna við landamærin eru um 2% landsmanna, en 80% landsmanna styðja eindregið aðgerðir við landamærin í núverandi mynd eða hertri. Samt fékk ég línu um daginn frá góðri frænku minni í útlöndum sem fylgist ágætlega með íslenskri þjóðmálaumræðu og var alveg gáttuð á þessari úlfúð sem væri hér í landinu út af tiltölulega vægum ráðstöfunum. Hún er sjálf í landi þar sem hefur verið útgöngubann og allt daglegt líf eiginlega bara drepið í dróma. Ég útskýrði fyrir henni að skoðanakannanir segðu annað, en andstæðingar sóttvarna væru bara svo háværir og duglegir að koma sjónarmiðum sínum á framfæri.

Hvaða fólk er þetta annars? Ég held að þetta séu einhvers konar stjórnleysingjar, þetta séu anarkistar til hægri og vinstri sem líta á almenning, einstaklingana annars vegar og svo ríkisvaldið hins vegar, sem óvini, sem andstæður, þar sem einstaklingurinn sé alltaf að verjast ásælni ríkisins. Þetta eru sjónarmið sem er allt í lagi að viðruð séu og sjálfsagt er að leggja eyru við. En þetta eru sem sé 2% sjónarmið. Samt finnst manni eins og þessi 2% sjónarmið eigi sér ríkari hljómgrunn innan ríkisstjórnarinnar en meðal almennings og mann grunar að þessi sjónarmið hafi orðið ofan á þegar ríkisstjórnin lét undir höfuð leggjast að tryggja í lögum að hægt væri að skikka fólk í sóttvarnahús, eins og sóttvarnalæknir vildi. (Forseti hringir.) Þá heyrðust líkingar við gúlagið og fangabúðir nasista og guð má vita hvað. (Forseti hringir.) Þetta er sem sagt enn eitt málið þar sem hægri öfgar fá óeðlilegt vægi við lagasetningu. Og það er (Forseti hringir.) vegna þess að vinstri menn bera ekki gæfu til að vinna saman.

(Forseti (GBr): Forseti biður hv. þingmenn vinsamlegast um að virða tímamörkin.)