störf þingsins.
Herra forseti. Baráttan við Covid og afleiðingar heimsfaraldursins hefur ekki bara verið sóttvarnir og heilbrigðisþjónusta. Hún hefur líka falið í sér mjög umfangsmiklar aðgerðir í efnahagsmálum, umfangsmiklar aðgerðir til að grípa til varna fyrir íslenskt samfélag, fyrir íslenskan almenning til þess að afleiðingar faraldursins bíti ekki eins harkalega og ella hefði orðið.
Þingið hefur í góðri samstöðu afgreitt fjölda mála sem koma að efnahagslegum afleiðingum faraldursins og í gær ræddi ég m.a. einn af þeim þáttum, þ.e. átakið Hefjum störf. Í morgun kom svo uppfært mat frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum á aðgerðum stjórnvalda í samanburði við önnur lönd. Og nú brá svo við að Ísland var ekki lengur eitt af rauðu löndunum, sem einhverra hluta vegna hafði komist inn í mat þeirra áður, heldur vorum við nú einna grænust og með aðgerðapakka sem tomma nokkuð yfir 9% af landsframleiðslu, mun meira en hjá hinum Norðurlöndunum, og það þrátt fyrir að hér hafi í heildarsamhenginu gengið býsna vel í baráttunni við faraldurinn. Við höfum til að mynda getað haldið samfélaginu opnu miklu lengur og meira en nágrannaríkin. Bólusetningar hafa gengið vel, við erum á réttri leið þar. Það var greinilegt að nokkurt fár kviknaði á samfélagsmiðlum þegar fyrri útgáfa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á mati á aðgerðum kom fram. Ég hlakka til að sjá þau jákvæðu viðbrögð sem vafalaust munu koma við þessum góðu fréttum á sama vettvangi.