151. löggjafarþing — 78. fundur,  14. apr. 2021.

störf þingsins.

[13:08]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Hæstv. forseti. Þrátt fyrir viðsjár í efnahagsmálum hefur fiskeldi aflað meiri gjaldeyristekna en nokkru sinni og vægi þess hefur aldrei verið meira. Á síðasta ári var slátrað rúmum 40.000 tonnum af eldislaxi og útflutningsverðmæti nam rúmlega 29 milljörðum. Verðmæti útfluttra sjávarafurða nam um 270 milljörðum kr. og því var hlutfall fiskeldis af útflutningsverðmæti sjávarafurða komið í um 11%. Það eru tæp 5% verðmæta vöruútflutnings þjóðarinnar.

Fiskeldi er því ekki einungis komið til að vera heldur stefnir í að það verði einn af grunnatvinnuvegum Íslendinga. Það hefur burði til að vaxa, ólíkt öðrum sjávarútvegi sem sækir í takmarkaða auðlind sem byggð er á sjálfbærri nýtingu. Fyrir alla áhugamenn um atvinnuuppbyggingu landsbyggðar er vaxtarþróun fiskeldis mikilvæg. Byggðastofnun telur að að jafnaði hafi mátt rekja um 81% atvinnutekna í fiskeldi til landsbyggðarinnar. Á það ekki síst við um fiskeldi á Austfjörðum þar sem slátrað var 10.000 tonnum á síðasta ári. Ánægjulegt hefur verið að fylgjast með Fiskeldi Austfjarða sem hóf starfsemi sína árið 2012 í Berufirði og hefur síðan farsællega byggt upp starfsemi þar og á Fáskrúðsfirði og slátrun og vinnslu á Djúpavogi. Hluti afurðavinnslunnar er í Borgarnesi og seiðaeldi er í Þorlákshöfn og Kelduhverfi. Reksturinn, sem heldur nú um 100 starfsmenn, liggur því víða um landsbyggðina. Sama gildir um fyrirtækið Laxa fiskeldi, sem rekur seiðaeldi í Ölfusi en er með umfangsmikið og fullkomið sjókvíaeldi á Reyðarfirði með 16.000 tonna framleiðsluheimild á laxi. Slátrun fer fram í Búlandstindi á Djúpavogi, sem er í eigu þeirra og samstarfsaðila. Þrátt fyrir að stór hluti Íslands hafi verið lokaður fyrir fiskeldi frá 2004 og stjórnvöld setji eldinu æ strangari kröfur, óttast menn umhverfisáhrif á vöxt fiskeldisins. Við skulum gera ríkar kröfur um uppbyggingu eldis í sátt við umhverfið því að efnahagsleg hagsæld mun áfram byggja á vexti útflutningsgreina.