151. löggjafarþing — 78. fundur,  14. apr. 2021.

störf þingsins.

[13:11]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Í góðri umræðu Flokks fólksins hér á Alþingi í gær, um fátækt á Íslandi, var talað um meðaltal í því hve gott við höfum það hér á landi. Meðaltal segir ekkert um það hversu gott eða slæmt fólk hefur það sem verst er sett hér á landi. Nýjasta spurningin varðandi það hvernig við eigum að útrýma fátækt er sú sem hæstv. fjármálaráðherra setti fram í umræðu hér á Alþingi: Hvar eigum við að fá fjármagn til þess? Hvar eigum við að fá fjármagn til þess að útrýma sárafátækt og fátækt í heild sinni? Nýjasta útspil ríkisstjórnarinnar í málefnum þeirra sem lengst hafa verið atvinnulausir er stuðningur upp á 472.000 kr. á mánuði plús lífeyrissjóðsgreiðsla upp á 11%, sem er gott mál svo langt sem það nær, eða bara rétt fram yfir kosningar. Enginn spurði um það hvar ætti að fá fjármagn til að standa undir þessum útgjöldum. Það hefur enginn í ríkisstjórninni spurt að því hvaðan fjármagnið eigi að koma til að standa undir öllum þeim hundruðum milljarða króna sem aðgerðir ríkisstjórnarinnar vegna Covid-19 veirufaraldursins hafa kostað ríkissjóð. Nei, þessi kostnaður kemur úr ríkissjóði og þaðan á einnig að koma fjármagn til að koma í veg fyrir ömurlega stöðu þeirra sem lifa við fátækt. Það er ömurlegt að fátækt fólk eigi ekki fyrir mat fyrir börnin sín nema rétt í byrjun mánaðarins. 472.000 kr. fyrir skatt er há krónutala hjá þeim verst settu, sem verða að reyna að tóra á helmingi lægri upphæð, eða rúmlega 200.000 kr. útborguðum á mánuði. Fátækt eða örbirgð er efnahagsástand í boði ríkisstjórnarinnar hjá þeim sem líða skort, skortir mat, húsnæði, föt og aðrar nauðsynjar, og hafa verri aðgang að heilbrigðisþjónustu. Við erum með börn í þessum ömurlegu aðstæðum. Börn í þúsundatali búa við ömurlegar aðstæður og þurfa að lifa við fátækt.

Flokkur fólksins segir: Útrýmum fátækt strax. Fólkið fyrst, svo allt hitt.