störf þingsins.
Forseti. Þegar land er ræktað getur verið skynsamlegt að hvíla það um hríð og hefja svo aftur ræktun á því. Ég lít svo á með mál sem ég er að tala um hér, að ég hafi hvílt það um hríð en ætli svo að taka það aftur upp á ný. Þetta er mál sem er mér mjög hugleikið og snýr að innlendri matvælaframleiðslu og þeim hugmyndum sem ég hef um að koma upp matvælaframleiðsluklasa á Suðurlandi í kringum Árborgarsvæðið. Ég hef talað um þetta áður, frú forseti, og það er vegna þess að ég held að þetta sé þjóðþrifamál sem ég hvet Alþingi og ríkisstjórnina sérstaklega til að taka upp. Við tölum nefnilega um það á hátíðarstundum að við viljum efla innlenda matvælaframleiðslu. Það er ekki eftir neinu að bíða með að taka stór og ákveðin skref í því. Ég hef horft á Suðurland sérstaklega sem er blómlegt matvælaframleiðsluhérað. Þar fer stór hluti grænmetisframleiðslu landsins fram, aðstæður eru sérstaklega góðar þar hvað jarðhitann varðar og stutt á helsta markað, kornrækt mikil, rannsóknarstöð í Gunnarsholti, yrkisrannsóknir sem þarf að efla og ýmislegt fleira, að ég tali nú ekki um Garðyrkjuskólann að Reykjum sem hefur verið vagga íslenskrar garðyrkju áratugum saman. Okkar skylda er að viðhalda þeirri starfsemi og starfsmenntun sem þar er. Mjólkurframleiðsla er öflug á svæðinu. Það má nefna fiskeldismálið í Þorlákshöfn, ég held að það hafi verið nefnt hér af einhverjum hv. þingmanni áðan. Við erum með fiskeldis- og fiskvinnsluskóla í Grindavík sem er hægt að tengja í gegnum Suðurstrandarveg o.s.frv.
Forseti. Ég er með mál hér í þinginu um akkúrat þetta og ég ætla tímans vegna að álykta að það sé ekki endilega öruggt að það klárist. En ég hvet þá ráðherra sem þar er skorað á að taka málið einfaldlega upp, að ríkisstjórn Íslands komi á þessu þjóðþrifamáli á Suðurlandi.