störf þingsins.
Herra forseti. Ég ætla að víkja hér aðeins að ferðavögnum eða hjólhýsum sem eru vinsælt farartæki hér á landi. Í Morgunblaðinu í dag segir að sala á hjólhýsum sé margföld miðað við sama tíma í fyrra og það líti út fyrir að allir nýir ferðavagnar verði uppseldir í maí til júní. Enn fremur segir í fréttinni að allir ætli að ferðast innan lands í sumar vegna veirufaraldursins. Þrátt fyrir miklar vinsældir hjólhýsa er verið að úthýsa hjólhýsum á vinsælum svæðum til áratuga eins og á Laugarvatni og í Þjórsárdal. Hjólhýsaeigendur hafa fengið bréf um að þeir eigi að koma sér burt og aðlögunartíminn er mjög skammur. Í Þjórsárdal má ætla að ákvörðunin snerti um 300 til 400 manns. Það er Skógrækt ríkisins sem ræður ríkjum í Þjórsárdal og ber umhverfisráðherra ábyrgð á þessari framkomu. Umhverfisráðherra hefur hvatt landsmenn til að ferðast innan lands en vill síðan ráða því hvar þeir mega ekki vera. Á Laugarvatni er það Bláskógabyggð sem lokar vinsælasta hjólhýsasvæðinu á Íslandi og kom það sem reiðarslag fyrir hjólhýsaeigendur. Fyrstu hjólhýsin komu á Laugarvatn fyrir 50 árum. Hjólhýsi eru yfir 200 og hafa eigendur lagt í margvíslegan kostnað og vinnu við að útbúa sér sína sælureiti til áratuga. Breytingar á regluverki hafa gert það að verkum að koma þarf öryggismálum á svæðinu í viðunandi horf. Sveitarfélagið er ekki reiðubúið að leggja í þann kostnað. Félag hjólhýsaeigenda hefur boðist til að taka þátt í kostnaðinum og leggja til 20 millj. kr. en sveitarfélagið hefur ekki séð ástæðu til að svara því. Eflaust þarf úrbætur á fleiri hjólhýsasvæðum á landinu. Ef viðbrögðin verða þau sömu og hjá Bláskógabyggð og í Þjórsárdal er ljóst að hjólhýsasvæði á Íslandi munu renna sitt skeið á enda. (Forseti hringir.) Landsmenn eru hvattir til að ferðast innan lands og sala hjólhýsa slær öll met en á sama tíma er hafin herferð gegn hjólhýsasvæðum.