151. löggjafarþing — 78. fundur,  14. apr. 2021.

störf þingsins.

[13:20]
Horfa

Ásmundur Friðriksson (S):

Virðulegi forseti. Ég sat fund með fulltrúum þeirra 46.000 eldri borgara sem búa í landinu þar sem fram koma helstu áherslupunktar þeirra fyrir komandi alþingiskosningar. Á fundinum í Stangarhyl, sem var afar upplýsandi, ríkti góður andi, eins og venjulega þegar við hittum fulltrúa eldra fólks. Fyrsti áherslupunkturinn fjallar um að eldra fólk fái að vinna eins og það vill. Það er mikilvægt að við náum frekari sátt um frítekjumörk, en hver þúsundkall í hækkun frítekjumarka kostar ríkissjóð 200 millj. kr., eins og fram kom á fundinum. Ég velti fyrir mér hvort lægsta tíundin, 3.500 manns, sem hefur engar aðrar tekjur til að skerða eða bæta kjör þess, gæti fengið viðbótargreiðslu sem næmi lægstu frítekjumörkum. Þessi hópur situr alltaf eftir í öllum kröfugerðum og þarna gæti 25.000 kr. greiðsla skipt máli fyrir aðila sem hefur rétt um 300.000 kr. á mánuði.

Virðulegi forseti. Önnur atriði sem eldra fólk kallar eftir er að 70 ára starfsaldursregla verði afnumin og að fólk ráði starfslokum sínum sjálft. Fram kom hjá þeim að 67 ára aldursmörk stýri því mjög hvenær fólk fer á lífeyri. Hér er mál sem er mikilvægt að skoða í ljósi þess að þjóðin eldist og starfskrafta fólks nýtur lengur við fram eftir aldri. Þá vill eldra fólk að heilsugæslan verði vagga öldrunarþjónustu sem nálgast hópinn fyrr á lífsleiðinni með samhæfðri teymisvinnu lækna, hjúkrunarfræðinga, Janusarverkefninu og fleiri verkefnum. Eldra fólkið kallar eftir nýjum búsetuúrræðum, sem núna eru fábreytt. Það kallar eftir millistigi í búsetu á eigin heimili og hjúkrunarheimili, sem mætti sannarlega reka af einkaaðilum. Hér er á ferðinni afar áhugaverð hugmynd sem skoða mætti vel.

Virðulegur forseti. Það er mikilvægt við svörum kalli eldra fólks um að hafa áhrif á eigið líf. Það gerum við með því að auka frjálsræði og leiðir í búsetu og þjónustuúrræðum þessa hóps og tryggja afkomu þeirra sem lægstar hafa tekjurnar í þessum hópi með því að lægstu greiðslur almannatrygginga fylgi lægstu launum í landinu.