151. löggjafarþing — 78. fundur,  14. apr. 2021.

störf þingsins.

[13:22]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V):

Herra forseti. Evrópumálin hafa verið nokkuð til umræðu á ný, góðu heilli. Það er á stefnuskrá Viðreisnar að halda áfram aðildarviðræðum um inngöngu Íslands í það góða samband sjálfstæðra og fullvalda Evrópuþjóða. En við þessar aðstæður spyr fólk gjarnan: Hvers vegna er þetta markmið ykkar í Viðreisn? Svarið við því er einfalt. Innganga í Evrópusambandið er ekki sjálfstætt markmið. Inngangan er hins vegar stórt skref í átt að mörgum markmiðum sem þingmenn allra flokka berjast fyrir. Með inngöngu í Evrópusambandið og upptöku evru fylgir langþráður gengisstöðugleiki. Hann mun gera rekstur á Íslandi blómlegri með auknum fyrirsjáanleika og lægri vöxtum. Hann mun gera verðtrygginguna óþarfa fyrir heimili landsins. Hann mun lækka kostnað heimilanna við matarkörfuna. Innganga gerir okkur kleift að takast á við vandamál sem eru of stór fyrir einstök ríki að glíma við, ekki síst loftslagsbreytingarnar. Í Evrópusambandinu er mikill stuðningur við landbúnað, sérstaklega á norðurslóðum. Þar er haldið vel utan um hagsmuni smárra fyrirtækja og stuðning við nýsköpun. Stöðugra gengi styður líka við hagvöxt og hagvöxtur er lykillinn okkar að því að stíga út úr yfirstandandi heimskreppu án þess að þurfa að grípa til verulegs niðurskurðar og skattahækkana. Þetta vitum við allt saman vel. Listinn er langur yfir kosti þess að ganga í Evrópusambandið. Nærtækt er núna að nefna hvar við stæðum í öflun bóluefna ef við nytum ekki skjóls Evrópusambandsins og svarið blasir auðvitað við: Mun verr. Þess vegna er innganga í Evrópusambandið ekki sjálfstætt markmið en hún er vegurinn okkar að bættum lífsgæðum og fjölþættri lausn við mörgum stórum vandamálum.