151. löggjafarþing — 78. fundur,  14. apr. 2021.

störf þingsins.

[13:25]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Hvernig getum við verið sjálfbær? Það er spurning sem er ofarlega í hugum margra, sérstaklega þegar við erum að komast út úr krísuástandi sem fylgir þessum heimsfaraldri. Hvað gerum við til að tryggja fæðuöryggi okkar t.d. þegar við styðjumst svo mikið við innflutning eins og raun ber vitni? Þetta eru spurningar sem þarf að svara og þetta er umræða sem þarf að eiga sér stað á flestum stigum stjórnsýslunnar.

Hugsaðu stórt, hugsaðu grænt, er yfirskrift vefstofu sem Eimur, Nýsköpun í norðri og Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra og vestra, ásamt Hacking Hekla, standa fyrir á morgun. Vefstofan er undanfari lausnamótsins Hacking Norðurland, sem hefst svo í kjölfarið. Þar er þemað orka, matur og vatn, eða heilög þrenning í sjálfbærni, eins og þau segja sjálf. Markmiðið er að hvetja fólk til að hugsa hvernig hægt er að nýta auðlindir Norðurlands með sjálfbærum hætti til framtíðar.

Á síðu fundarins segir, með leyfi forseta:

„Þessar auðlindir tengjast órjúfanlegum böndum og þannig getur verið gagnlegt að hugsa um þær saman. Þetta eru auðlindir sem við erum rík af og auðlindir sem við bruðlum með. Hvernig getum við verið sjálfbær og til fyrirmyndar á heimsvísu?“

Ég tel þetta átak sannarlega vera til fyrirmyndar. Hér er unnið þvert á stofnanir og stoðir hins opinbera til að vinna að lausnum á mörgum þeirra stóru spurninga sem við stöndum nú frammi fyrir. Eins og flest er þessa dagana, og ég benti á hér áðan, er þetta á netinu og ég hvet fólk sem vill vita meira um þetta að hlusta á setninguna á morgun sem hefst klukkan tvö og er á Facebook-síðu Eims.