151. löggjafarþing — 78. fundur,  14. apr. 2021.

störf þingsins.

[13:27]
Horfa

Birgir Ármannsson (S):

Herra forseti. Ég ætla að víkja örfáum orðum að sama máli og hv. þm. Ólafur Þór Gunnarsson minntist á hér áðan, sem er nýtt uppfært mat Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á umfangi þeirra stuðningsaðgerða sem íslensk stjórnvöld hafa gripið til vegna viðbragða við Covid-vandanum. Ég held að það sé mjög mikilvægt að þingmenn átti sig á því að þær tölur sem fóru á flug hér fyrir helgi, og bentu til þess að stuðningur hér á landi hefði verið mun minni en í flestum löndum sem við berum okkur saman við, voru byggðar á vitlausum forsendum. Það var ekki tekið tillit til allra þeirra aðgerða sem skipta máli í þessu sambandi, vantaði reyndar heilmikið upp á að teknar væru inn í dæmið aðgerðir sem bein tengsl hafa við Covid og eru viðbrögð við vandanum og eins virðist viðmiðunartímabil að einhverju leyti hafa verið annað. Einungis var tekið tillit til aðgerða hér á síðasta ári en í ýmsum viðmiðunarlöndum a.m.k. var tekið tillit til aðgerða á þessu ári líka og svo virðist það vera í stöðunni að bornar hafa verið saman annars vegar rauntölur frá Íslandi og hins vegar einhverjar áætlanir stjórnvalda í öðrum ríkjum. Á margan hátt var því verið að bera saman epli og appelsínur og niðurstaðan auðvitað skökk eftir því. Í staðinn fyrir að íslensk stjórnvöld séu að verja 2,1% af vergri landsframleiðslu í stuðningsaðgerðir, sem var niðurstaða skýrslunnar, er um að ræða 9,2% af vergri landsframleiðslu, það er gríðarlegur munur.

Nú er alltaf hægt að teygja svona samanburð og toga með ýmsum hætti. Það skiptir hins vegar verulegu máli í þessu sambandi að ná leiðréttingu á þessu (Forseti hringir.) eins og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn virðist hafa fallist á. Við erum þá komin miklu nær því að vera að bera saman sambærilega hluti.