151. löggjafarþing — 78. fundur,  14. apr. 2021.

störf þingsins.

[13:29]
Horfa

Willum Þór Þórsson (F):

Hæstv. forseti. Hlutverk fjármálaráðs er afar mikilvægt í verklagi ríkisfjármála. Hv. fjárlaganefnd fékk fulltrúa ráðsins á sinn fund í morgun til að ræða álitsgerð þess við tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2022–2026. Í 13. gr. laga um opinber fjármál er kveðið á um hlutverk ráðsins um að leggja mat á hvort fjármálastefna og fjármálaáætlun og stefnumörkunin fylgi þeim grunngildum sem kveðið er á um í 2. mgr. 6. gr. sömu laga, um sjálfbærni, varfærni, stöðugleika, festu og gagnsæi, auk þess sem hún standist fjármálaleg skilyrði 7. gr. laganna um afkomu, skuldahlutfall og skuldalækkunarhlutfall. Eins og við þekkjum hefur fjármálareglum verið vikið til hliðar og kveðið á um breytt hlutverk fjármálaráðs að því leyti að leggja mat á þau áform stjórnvalda að virkja fjármálareglurnar að nýju árið 2026 að undangenginni stöðvun skuldasöfnunar 2025, sem að því leyti hefur ígildi fjármálareglu.

Álit fjármálaráðs hefur verið mjög gagnlegt og í senn leiðsögn í umfjöllun þingsins auk þess að styðja við almenna og hlutlæga umræðu um stefnumörkun stjórnvalda og opinber fjármál. Á því er ekki breyting og fundurinn með ráðinu var að venju upplýsandi. Það sem er óhefðbundið nú, en kjarnar kannski um leið mikilvægi ráðsins út frá hlutverki þess, eru efnahagslegar afleiðingar kórónuveirunnar og sú staðreynd að við erum á kosningaári. Áskoranirnar í ríkisfjármálum eru þó ekki að fara frá okkur og það er ærið verkefni að koma á jafnvægi og stöðugleika að nýju með sjálfbærni að leiðarljósi. Auðnist okkur það er það mat fjármálaráðs að gangi forsendur eftir varðandi yfirlýst markmið stjórnvalda í opinberum fjármálum og framfylgd þeirra verði hægt að virkja fjármálareglur að nýju árið 2026.