151. löggjafarþing — 78. fundur,  14. apr. 2021.

störf þingsins.

[13:34]
Horfa

Rósa Björk Brynjólfsdóttir (Sf):

Herra forseti. Istanbúl-samningurinn er samningur um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi gagnvart konum og heimilisofbeldi. Hann var samþykktur á vettvangi Evrópuráðsins 11. maí 2011, en hér á landi var hann fullgiltur í apríl 2018. Istanbúl-samningurinn er einn mikilvægasti samningur Evrópuráðsins og eitt öflugasta tækið til að berjast á alþjóðavísu á alþjóðavettvangi gegn kynbundnu ofbeldi, heimilisofbeldi og þvinguðum hjónaböndum. Það myndi hafa alvarlegar afleiðingar fyrir líf milljóna kvenna og stúlkna í aðildarríkjum Evrópuráðsins, ef svo fer fram sem horfir að aðildarríki á borð við Pólland, Tyrkland, Slóvakíu og Ungverjaland segi sig frá þessum gríðarlega mikilvæga samningi. Það sem einu sinni virtist tiltölulega óumdeilt 25 blaðsíðna skjal, átti eftir að verða ásteytingarsteinn í aðildarríkjum Evrópuráðsins um skilgreiningu á kyni og myndgerving fyrir stærra menningarstríð sem er í uppsiglingu og hefur verið grasserandi og kraumandi síðustu árin á milli gömlu Austur-Evrópu og Vestur-Evrópu. Eitt af öðru snúa gömlu Austur-Evrópuríkin baki við samningnum og fullyrða að hann muni rýra útgáfu þeirra af fjölskyldugildum. Tyrkland, sem hýsti samninginn, mun draga sig út úr honum 1. júlí næstkomandi. Pólland hefur gefið til kynna að það efist um samninginn, neðri deild pólska þingsins. Önnur Evrópulönd, Ungverjaland, Búlgaría og Tékkland, undirrituðu skjalið en hafa ekki þýtt ákvæði þess í lög.

Andstreymið snýst um menningarstríð á milli popúlískra, and-femínískra afla á móti sjálfsögðum réttindum kvenna og stúlkna um að eiga sér mannsæmandi líf. Þetta er ekki bara áróðursstríð gegn Istanbúl-sáttmálanum, þetta er líka and-evrópskt áróðursstríð (Forseti hringir.) og and-ESB áróðursstríð, eins og Daniel Holtgen, talsmaður Evrópuráðsins, sagði í gær. (Forseti hringir.) Við, íslenskir þingmenn, eigum að láta í okkur heyra og mótmæla þessu framferði aðildarríkja Evrópuráðsins (Forseti hringir.) á hvaða vettvangi sem við getum og ég hvet okkur öll til þess.