grunnskólar og framhaldsskólar.
Virðulegi forseti. Hér er mælt fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um grunnskóla, nr. 91/2008, og lögum um framhaldsskóla, nr. 92/2008, um fagráð eineltismála. Ísland hefur með ýmsum alþjóðlegum skuldbindingum skuldbundið sig til þess að tryggja öryggi og velferð barna, þar á meðal með barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem var lögfestur hér á landi með lögum nr. 19/2013.
Einelti er samfélagslegt mein og brýnt að allir í skólasamfélaginu leggi sitt af mörkum til að uppræta það. Fagráði eineltismála er ætlað það hlutverk að veita skólasamfélaginu stuðning vegna eineltismála með almennri ráðgjöf, leiðbeiningum og upplýsingagjöf, auk þess sem hægt er að vísa einstökum málum til fagráðsins sem lýkur slíkum málum með áliti. Slíkt álit hefur oft að geyma leiðbeiningar til aðila skólasamfélagsins, þar á meðal foreldra, um hvernig vinna megi að úrlausn mála með hagsmuni barns að leiðarljósi.
Nú vík ég að efnislegu innihaldi frumvarps þess sem hér er mælt fyrir. Meginmarkmið frumvarpsins er að styrkja lagastoð fagráðsins með sambærilegum breytingum á lögum um grunnskóla, nr. 91/2008, og lögum um framhaldsskóla, nr. 92/2008. Þannig verður ekki lengur skylt að kveða á um starfsemi fagráðs í reglugerð um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins á hvoru skólastigi heldur verður því komið fyrir með sérstakri lagagrein í hvorum lagabálki.
Með 1. mgr. 2. gr. frumvarpsins er mælt fyrir um að ráðherra skipi fagráð eineltismála sem starfar á grunn- og framhaldsskólastigi. Fagráðið skal skipað þremur aðalmönnum og þremur varamönnum sem hafa þekkingu, menntun og reynslu sem nýtist við ráðgjöf og úrlausn mála. Ráðherra er heimilt að fela Menntamálastofnun eða öðrum aðilum að annast umsýslu fagráðsins. Málsgreinin er í samræmi við núgildandi verklagsreglur en með lögfestingu hennar er ætlunin sú að tryggja að fagráðið hafi styrkari lagastoð en áður.
Með 2. mgr. er kveðið á um hlutverk fagráðsins til samræmis við núgildandi verklagsreglur. Málsgreinin stendur í beinum tengslum við 3. mgr. sem kveður á um heimild fagráðsins til að vinna með persónuupplýsingar. Sú málsgrein kemur til vegna þeirrar þróunar sem orðið hefur á störfum fagráðsins en í dag berst fagráðinu meira magn af viðkvæmum upplýsingum í tengslum við mál sem eru til meðferðar. Þá er í 4. mgr. að finna ákvæði sem fjallar um rétt almennings til aðgangs að gögnum og er ákvæðið til samræmis við 2. mgr. 45. gr. barnaverndarlaga, nr. 80/2002. Sú tillaga byggist á upplýsingum frá fagráði eineltismála um að því berist gjarnan gögn sem eiga rætur að rekja til barnaverndarmála og þykir rétt að sömu takmarkanir séu á afhendingu slíkra gagna hjá fagráði eineltismála og gilda hjá barnaverndarnefndum.
Virðulegur forseti. Ég vænti þess að málinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og hv. allsherjar- og menntamálanefndar.