151. löggjafarþing — 78. fundur,  14. apr. 2021.

fjölmiðlar.

717. mál
[13:46]
Horfa

mennta- og menningarmálaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Hér verður mælt fyrir frumvarpi til laga um breytingu á fjölmiðlalögum, nr. 38/2011. Frumvarpinu er ætlað að innleiða tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2018/1808, um breytingar á hljóð- og myndmiðlunartilskipun ESB 2010/13.

Miklar breytingar hafa orðið á undanförnum árum á stöðu fjölmiðla, einkum með tilkomu og vexti samfélagsmiðla. Tilefni breytinga á hljóð- og myndmiðlunartilskipuninni var að hún fæli ekki í sér fullnægjandi vernd fyrir börn og neytendur á svokölluðum mynddeiliveitum, sem er nýtt hugtak yfir það sem á ensku er nefnt „video sharing platforms“. Þekktust þeirra er YouTube en Facebook fellur einnig þar undir. Áhorfsvenjur fólks hafa breyst og þá sérstaklega barna. Línulegt áhorf hefur minnkað og fólk horfir sífellt meira á efni í ólínulegri dagskrá og á mynddeiliveitum. Nauðsynlegt var talið að reglur um fyrrnefndar myndmiðlunarleiðir yrðu samræmdar til að stuðla að jafnræði fjölmiðla, óháð þeim miðlunarleiðum sem þeir nota.

Virðulegi forseti. Nú mun ég víkja að meginefni frumvarpsins. Í fyrsta lagi er lagt til að mynddeiliþjónusta falli að hluta undir lögsögu fjölmiðlanefndar og nýjar efnisreglur í fjölmiðlalögum. Sú breyting er nýmæli þar sem með því eru ákveðnir þættir í starfsemi mynddeiliveitna felldir undir fjölmiðlalög þótt slíkar veitur séu ekki fjölmiðlar í eðli sínu.

Í öðru lagi er með ítarlegum lögsögureglum kveðið á um staðfesturíki mynddeiliveitna, þ.e. undir lögsögu hvaða EES-ríkis starfsemi þeirra heyrir.

Í þriðja lagi er með ítarlegum hætti kveðið á um þær viðeigandi ráðstafanir sem mynddeiliveitur þurfa að grípa til í því skyni að vernda börn og ungmenni fyrir efni og notendaframleiddu efni sem getur haft skaðleg áhrif á líkamlegan, andlegan eða siðferðislegan þroska. Óheimilt verður að dreifa efni sem hvetur til ofbeldis, haturs og refsiverðs verknaðar. Í því efni er sérstaklega tilgreind hvatning til hryðjuverka og efni sem lýtur að kynþátta- og útlendingahatri. Að sama skapi er skerpt á sambærilegum reglum sem gilda fyrir fjölmiðla. Hér er rétt að geta þess að reglurnar snúast ekki um að mynddeiliveitur ritskoði efni sem deilt er á þeirra vegum heldur að þær geri notendum sínum auðvelt að tilkynna efni sem fer gegn reglum þeirra og tilskipunarinnar. Mynddeiliveitum er skylt að grípa til viðeigandi ráðstafana ef ljóst þykir að efnið brjóti í bága við ákvæðið.

Í fjórða lagi eru breytingar á ákvæðum um upprunaland fjölmiðlaþjónustu og hvernig skuli bregðast við efni sem sjónvarpað er frá einu ríki en er beint til notenda í öðru ríki. Hér er ríkjum sem efninu er beint að og sem telja að efni brjóti gróflega gegn lögum þeirra gert auðveldara að stöðva slíkar útsendingar eða krefjast þess að upprunaríkið grípi til viðeigandi aðgerða.

Í fimmta lagi er gerð krafa um að 30% af framboði myndefnis eftir pöntun verði evrópsk verk og auglýsingareglur rýmkaðar þannig að hámark auglýsinga verði 20% á tilteknum tímabilum en ekki bundið við 20% á klukkustund eins og nú gildir.

Í sjötta lagi er í frumvarpinu gert ráð fyrir að fjölmiðlanefnd fái það hlutverk að gera áætlanir og ráðstafanir til að efla og þroska fjölmiðlalæsi almennings auk annarra verkefna er varða upplýsingagjöf til Eftirlitsstofnunar EFTA og þátttöku í starfi samráðshóps evrópskra fjölmiðlaeftirlitsstofnana.

Að lokum er í frumvarpinu lagt til að nýttar séu heimildir í tilskipuninni til að setja frekari reglur en kveðið er á um þar. Annars vegar er um að ræða að notendum sé kynnt með skýrum hætti að um auglýsingu eða kynningu sé að ræða ef innskotið er lengra en fimm mínútur, og hins vegar að aðeins þeim sem ekki stunda starfsemi í hagnaðarskyni sé heimilt að kosta barnaefni. Aðrar breytingar eru minni háttar.

Virðulegur forseti. Ég tel að það frumvarp sem ég mæli hér fyrir feli í sér ýmsar réttarbætur í takt við þær breytingar sem hafa orðið á undanförnum árum í fjölmiðlun og á samfélagsmiðlum og legg til að frumvarpinu verði að lokinni 1. umr. vísað til hv. allsherjar- og menntamálanefndar.