151. löggjafarþing — 78. fundur,  14. apr. 2021.

opinber stuðningur við nýsköpun.

322. mál
[14:36]
Horfa

Rósa Björk Brynjólfsdóttir (Sf):

Frú forseti. Í upphafi árs 2020 tilkynnti ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra ríkisstjórnarinnar þau áform sín að leggja niður Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Á því rúma ári sem liðið er frá því að málið kom fram hefur það snúist um að ganga nánast frá öllum yfirlýstum markmiðum um endurbætur, einföldun og lækkun kostnaðar.

Frú forseti. Við erum hér með umdeilt frumvarp í höndunum. Það fjallar í raun og veru um að bregðast við þeirri ákvörðun ráðherra frá því í upphafi árs 2020 að leggja niður Nýsköpunarmiðstöð Íslands og koma á fót Tæknisetri Íslands. Það er nokkuð stór breyting á stuðningi við nýsköpun á Íslandi. Miðpunktinn á að leggja niður, miðpunktinn sem hefur borið meginþungann og meginábyrgð á stuðningi við íslenska frumkvöðla frá því Nýsköpunarmiðstöðin var stofnuð árið 2007, fyrir 14 árum.

Til að rekja feril málsins, frú forseti, var opið fyrir umsagnir í samráðsgátt í tíu daga og á þeim dögum bárust 45 umsagnir frá 39 aðilum; frá einstaklingum, háskólum, stofnunum, sveitarfélögum og hagsmunasamtökum. Langstærstur hluti var neikvæður í garð frumvarpsins og viðraði og lagði fram margar alvarlegar athugasemdir við efni þess og innihald. Þeirra á meðal voru Vísindafélag Íslands, Verkfræðingafélag Íslands, Arkitektafélag Íslands, Hönnunarmiðstöð, Háskóli Íslands, Listaháskóli Íslands, Landsvirkjun og sérfræðingar í byggingar- og tæknirannsóknum auk starfsmanna Nýsköpunarmiðstöðvarinnar sjálfrar.

Meiri hluti atvinnuveganefndar lagði til breytingar á frumvarpinu í áliti sínu þar sem ráðherra var uppálagt að setja á fót stafræna nýsköpunargátt fyrir upplýsingagjöf um stuðning við nýsköpun og tryggja að ráðgjöf á fyrstu stigum nýsköpunarverkefna yrði gjaldfrjáls og aðgengileg hvar sem væri á landinu. Einnig lagði meiri hluti hv. atvinnuveganefndar til að ofangreint einkahlutafélag, svokallað tæknisetur sem ég minntist á í upphafi, skyldi bjóða öllu fastráðnu starfsfólki störf, fastráðnu starfsfólki efnis-, líf- og orkutæknideildar og Rannsóknastofu byggingariðnaðarins. Breytingartillögur meiri hlutans í nefndinni voru samþykktar í 2. umr. þar sem stjórnarandstöðuþingmenn, þar á meðal sú sem hér stendur, ítrekuðu andstöðu sína við frumvarpið og gagnrýndum við skort á undirbúningi, útfærsluatriðum, markmiðssetningu, skort á sýn, skort á stefnu o.s.frv. Engar breytingar voru gerðar í atvinnuveganefnd eftir 2. umr. og hér stöndum við nú.

Það er ákaflega margt sérkennilegt í þessu máli, vegna þess að rúmu ári eftir að yfirlýsing ráðherra var sett fram, um niðurlagningu Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, er staðan sú að stefnt er að því að á Keldnaholti verði starfrækt tæknisetur sem sinni byggingarrannsóknum, rannsóknum í jarð- og vegtækni og prófunum á byggingarvörum, rannsóknum í efnaverkfræði, efnistækni, líftækni og orkutækni, auk þess að bjóða aðstoð og starfsaðstöðu fyrir frumkvöðla á ofangreindum áherslusviðum. Með öðrum orðum er tilgangur, umfang, aðstaða og starfsfólk algerlega óbreytt frá fyrra fyrirkomulagi rannsóknardeilda Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, þegar undanskilinn er flutningur efnagreiningardeildar yfir á aðra stofnun. Yfir því klórar fólk sér í höfðinu vegna þess að markmiðin eru þá orðin allt önnur en upphafleg markmið. Allur þessi hringlandaháttur á rúmlega ári á þessari kjarnastarfsemi nýsköpunar á Íslandi hefur orðið þess valdandi að hér hefur orðið brot á tengslanetum, hlutverkum hefur verið dreift, byggja á aftur upp þjónustuna á nýjum stöðum innan kerfisins og í litlum samkeppnissjóðum með sérstakri umsýslu og þeim hefur verið fjölgað, rof hefur orðið á þjónustu, þekking horfið og þróunarnet hins opinbera gagnvart atvinnulífi og frumkvöðlum dofnað og rofnað. Og hver er þá uppskera þessa ótrúlega frumvarps?

Það er nefnilega svo, frú forseti, að eins og kom fram hér í máli hv. þm. Birgis Þórarinssonar þá er nýsköpunarstarfsemi ekki eins og önnur starfsemi. Það þarf að hlúa að þeirri starfsemi og þeim stuðningi af hálfu hins opinbera til að vel sé gert. Það er hins vegar ólíðandi að sá hringlandaháttur sem fylgdi framlagningu frumvarpsins, og hefur fylgt því þann tíma sem það hefur legið inni í þinginu, valdi þeirri óvissu og óskýrleika sem fólk í nýsköpun hefur þurft að þola á þessu rúma ári og hvað þá á tímum eins versta efnahagsástands sem við höfum upplifað, í kjölfar heimsfaraldurs, þar sem falleg orð hafa verið látin falla um mikilvægi nýsköpunar og að viðspyrnan út úr kreppunni sé nýsköpun. Þá er verið að taka umgjörð nýsköpunar og þyrla henni upp í loft og eftir stendur óvissa. Það eru eiginlega mestu vonbrigðin af öllu að finna ekki sterka sýn á framtíð nýsköpunar á Íslandi þegar bæði er ákall eftir því og fagrar ræður og fögur fyrirheit ráðherra og stjórnarþingmanna gefa til kynna að það sé besta leiðin út úr Covid-kófinu. En bæði þetta frumvarp hér og fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir næstu fimm ár gefa það ekki til kynna.

Talað er um eflingu nýsköpunar á landsvísu, stuðning við nýsköpun á sviði hátækni og forgangsröðun verkefna og að draga eigi úr yfirbyggingu og auka sveigjanleika svo að opinbert fé nýtist sem best. Þá er það dapurleg staðreynd að þeim fögru fyrirheitum er ekki fylgt eftir með því frumvarpi sem við ræðum hér í dag. Þær 700 milljónir sem ríkið lagði til reksturs Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands eru hlutfallslega lítil upphæð þegar miðað er við að í tíð núverandi ríkisstjórnar hafa árleg opinber útgjöld verið hækkuð vegna aukinna framlaga til rannsókna- og þróunarverkefna innan einkafyrirtækja og framlags til fjárfestingarsjóðsins Kríu.

Eins og ég hef talað um áður í þessum ræðustól er eðlilegt að einkafyrirtæki séu styrkt upp að ákveðnu marki. En sá stuðningur má ekki vera á kostnað stuðnings hins opinbera við opinberar stofnanir, opinberar rannsóknastofnanir eins og Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur verið. Það er því miður raunin. Það er í raun og veru þannig, frú forseti, að Ísland hefur á undanförnum árum dregist langt aftur úr meðaltali Evrópusambandsins yfir styrki við nýsköpunarstarfsemi í opinberum stofnunum.

Tilgangurinn, umfang, aðstaða og umgjörðin fyrir starfsfólk er algjörlega óbreytt frá fyrra fyrirkomulagi en hin mikla sýn um framtíðarlandslagið, hvernig við ætlum að hafa þetta, er ekki til staðar. Í þessu frumvarpi er ekki útfært hvernig og hvert hlutverk ríkisins, hins opinbera, eigi að vera þegar við tölum um stöðu nýsköpunar á Íslandi. Það er löngu samþykktur og margsamþykktur sannleikur, ekki bara hér á Íslandi heldur erlendis, að stuðningur hins opinbera við nýsköpunarstarfsemi í fyrsta og öðrum fasa er nauðsynlegur til þess að sú starfsemi vaxi og dafni með blómlegum hætti. Það er því með ólíkindum að fylgjast með framgangi þessa máls í þinginu.

Ég var að tala hér um heildarútgjöld til rannsókna og þróunar á Íslandi. Á árunum 2013–2015 jukust þau sem hlutfall af vergri landsframleiðslu. En þá hófst sú þróun sem við sjáum áframhald á í þessu frumvarpi, frumvarpi ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur um að auka heildarútgjöld rannsókna og þróunar til einkafyrirtækja. Sú vegferð hófst á árunum 2013–2015 í ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar. Hækkanir til fyrirtækja jukust um tæpan helming á meðan rannsókna- og þróunarframlög ríkisins til háskóla og opinberra stofnana lækkuðu á sama tíma sem hlutfall af vergri landsframleiðslu.

Hvað gerðist svo á árunum 2016–2018? Áfram héldu framlögin að lækka. Framlögin til rannsókna og þróunar lækkuðu í öllum ofangreindum flokkum og heildarútgjöld til þeirra drógust saman niður í 2% af vergri landsframleiðslu og stöðugt heldur þróunin áfram. Lækkunin heldur áfram að vera hlutfallslega mest hjá opinberum stofnunum og árið 2018 hafði hlutur opinberra stofnana í rannsókna- og þróunarútgjöldum dregist saman um þriðjung á fimm árum.

Það er nefnilega svo, frú forseti, að með því að auka framlög til háskóla og opinberra rannsóknastofnana hvetja stjórnvöld til frekari rannsókna- og þróunarumsvifa í einkageiranum. Í samanburði Hagstofunnar á dreifingu rannsókna- og þróunarútgjalda milli landa í Evrópu árið 2017 sést að Ísland er nálægt meðaltali Evrópusambandsins í heildarútgjöldum sem hlutfalli af vergri landsframleiðslu en hlutur opinberra stofnana var hins vegar að meðaltali 2,5 sinnum lægri á Íslandi en í Evrópusambandinu. Við erum í raun og veru með hálfgert stefnuleysi, myndi ég segja, í þessum málaflokki sem er svo gríðarlega mikilvægur fyrir okkur sem skapandi leið út úr þeim efnahagsáföllum sem riðið hafa yfir okkur hér á undanförnum rúmlega tólf mánuðum, sem er akkúrat þessi sjálfbæra leið til framtíðar, þessi græna leið sem við eigum að fara til að koma okkur út úr þessum efnahagskröggum, með því að efla verulega opinberar tæknirannsóknastofnanir á sviði nýsköpunar og styrkja rekstur opinberrar stofnunar sem hefur það hlutverk að brúa bil milli rannsókna og markaðar.

Í frumvarpinu hefur upphaflega markmiðssetningin fallið um sjálfa sig og er orðin að einhverju allt öðru en upphaflega og hringlandahátturinn gagnvart sviðinu, geiranum, starfsfólkinu hefur verið óboðlegur. Nú sitjum við uppi með þá staðreynd að styrkjaumhverfið í nýsköpun á Íslandi er tætingslegt, óljóst og óskýrt. Við vorum með stofnun sem vissulega og réttilega má gagnrýna og má endurskoða, sjá hvað gengur vel, sjá hvað gengur verr, straumlínulaga, gera stofnunina sterkari, skilvirkari. Nýsköpunarmiðstöð Íslands er ekki hafin yfir gagnrýni, en tökum þá fyrst stofnunina út og verum með eitthvert plan sem á að taka við, plan sem heldur, með skýra sýn, skýra stefnu og fókus á það hvað nákvæmlega við viljum fá hér á næstu árum fyrir komandi kynslóðir, fyrir sjálfbæran vöxt efnahagslífsins og fyrir sjálfbæran vöxt út úr þeirri kreppu sem við erum að glíma við.