rannsókn og saksókn í skattalagabrotum .
Herra forseti. Þetta frumvarp snýst um tvennt. Annars vegar eru það álitamálin um tvöföldu refsinguna og um það ríkir samkomulag. Hins vegar er það um stofnanafyrirkomulag, sem hefur ekkert með tvöföldun refsinguna að gera. Það er hægt að leysa það með öðrum hætti. Þetta frumvarp er að mínu mati meingallað. Ég vil að því verði vísað aftur til ríkisstjórnarinnar af ýmsum ástæðum, m.a. vegna þess að það er mikill óskýrleiki um ábyrgðarsvið.
Ég vil spyrja hv. þingmann hvort hann geti ekki tekið undir það með mér að við lestur frumvarpsins vakni spurningar um hvort ætlunin sé að hverfa frá núgildandi fyrirkomulagi þar sem eiginleg rannsókn fer fram hjá skattrannsóknarstjóra og fela hana héraðssaksóknara, eða hvort ráðgert sé að hin eiginlega rannsókn verði áfram framkvæmd hjá skattrannsóknarstjóra en undir stjórn eða beiðni héraðssaksóknara þegar á að rannsaka stærri mál. Hvernig á þetta fyrirkomulag að vera? Ég vil jafnframt spyrja hv. þingmann og framsögumann nefndarálitsins fyrir hönd meiri hlutans hvaða viðmið eigi að nota til að ákveða hvort mál eru stór og þurfi að fara út úr húsi. Hvaða viðmið eru það sem hv. þingmaður og meiri hlutinn sér fyrir sér að verði notuð til að flokka mál í mikilvæg og minni mál?