rannsókn og saksókn í skattalagabrotum .
Hæstv. forseti. Þetta er sama ræða og ég heyrði hjá Samfylkingunni þegar átti að sameina Fjármálaeftirlitið og Seðlabankann, nákvæmlega sama ræðan: Það er verið að veikja eftirlitið. Það er auðvitað ekki verið að veikja eftirlitið. Það er verið að styrkja það. Ég vil af þessu tilefni fá að lesa upp úr ræðu seðlabankastjóra, með leyfi forseta:
„Nú er það ein stofnun sem ber ábyrgð á fjármálastöðugleika og hefur í hendi sér upplýsingar um fjármálakerfið og þróun kerfislægrar áhættu innan þess. Hinn endursameinaði Seðlabanki hefur miklu skýrari valdheimildir til þess að grípa inn í rás atburða. Bankinn hefur nú þann slagkraft að geta haft áhrif á hegðun fjármálastofnana og markaðsaðila til hins betra. Því miður eigum við ekki enn nægjanlega góða þýðingu á enska orðinu „prudence“ sem sameinar allt það sem við viljum ná fram í hegðun eftirlitsskyldra aðila á fjármálamarkaði. Kannski má kalla það fyrirhyggju og ráðdeild — kannski þurfum við nafnasamkeppni til þess að ná þessum mikilvægu skilaboðum fram í einu orði?“
Nákvæmlega það sama erum við að gera hér. Við erum að ná fram betra eftirliti, skilvirkara eftirliti, meiri skýrleika, hvaða mál eigi heima undir ákæru og hver ekki, hvað hægt sé að leysa á stjórnsýslustiginu. Af hverju eiga almennar stjórnsýslustofnanir sem geta beitt viðurlögum að hafa ákæruvald líka? Það er almennt aldrei. Ég veit að Landhelgisgæslan vildi fá ákæruvald í landhelgisbrotum. Auðvitað gerist það ekki. Saksókn og ákæra er fyrir þá sem það kunna, ekki fyrir aðra. Það fer aldrei vel þegar stjórnsýslustofnanir eru farnar að gefa út ákæru og flytja mál fyrir dómi. Þær geta á grundvelli rannsókna sinna metið það svo að hér hafi verið framin brot og lagt á viðurlög. Síðan geta menn farið með það fyrir dóm ef þeir eru ósáttir við það.