rannsókn og saksókn í skattalagabrotum .
Það er þetta með eftirlitið sem við í Samfylkingunni viljum gjarnan efla á öllum sviðum samfélagsins en einhvern veginn hefur á þessu kjörtímabili borið meira á veikingu hvers konar eftirlits um alla anga samfélagsins. Þegar við tölum um að stjórnsýslustofnanir geti ekki líka farið með ákæruvald — hvers vegna ekki? Skattrannsóknarstjóri sjálfur skrifar 11 blaðsíðna umsögn þar sem hann rekur hvers vegna ætti ekki að fara þá leið sem ríkisstjórnin vill fara í þessu máli. Þarna er verið að gera hlutina óskýrari. Verið er að setja saman í einn graut eftirlit og rannsókn. Verið er að draga tennurnar úr skattrannsóknarstjóra þegar kemur að sjálfstæði embættisins sem verður núna deild, þegar kemur að fjárframlögum, þegar kemur að mannaráðningum, þegar kemur að umsvifum. Skattrannsókn er í eðli sínu annars konar starfsemi en eftirlit. Skattrannsóknarstjóri þarf að hafa eigin fjárheimildir og full yfirráð og vera öðrum óháður en ekki lítil deild innan ríkisskattstjóra. Þegar ég les umsögn skattrannsóknarstjóra finnst mér blasa við að verið er að draga tennurnar úr þessu embætti í staðinn fyrir að svara kallinu sem hefur heyrst árum saman; að reyna að efla það til að minnka útflæði fjármuna úr sameiginlegum sjóðum okkar landsmanna (Forseti hringir.) til að við getum átt hér innviði sem eru nógu traustir til að bera okkur öll.