151. löggjafarþing — 78. fundur,  14. apr. 2021.

skipulagslög.

275. mál
[18:55]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hann sé ekki bara að leggja til að hætt verði með málið. Ef taka á raflínunefndina út úr þessu ákveðna frumvarpi er kannski lítið eftir af málinu. Ég hélt að hún væri það sem væri lausnamiðað í málinu. Hvað leggur hv. þingmaður til til að leysa þessi mál?

Það er rétt að ekki hefur fengist framkvæmdaleyfi í tíu ár, held ég, fyrir Suðurnesjalínu 2, það tók 15–20 ár með línurnar fyrir norðan, Kröflulínu 3 og Hólasandslínu 3, og Blöndulína 3 er sjálfsagt búin að vera rúm 20 ár í umræðunni. Ég hélt að með frumvarpinu ætti að reyna að tryggja það öryggi sem við sáum í desemberveðrinu 2019 að er nauðsynlegt. Ekki er hægt að líkja því veðri og því sem gerðist þá í flutningskerfi raforku, sem er stóra kerfið, saman við þær truflanir sem orðið hafa í dreifikerfinu, minna kerfinu, sem hv. þingmaður var kannski að tala um að hefðu orðið í gegnum tíðina. Í þessu veðri brást flutningskerfið, stóra kerfið, í fyrsta skipti. Það er stóra breytingin í málinu og var náttúrlega alvarlegt. Þar gerðust hlutir varðandi veðrið sem ekki var reiknað með að gætu gerst, eða menn gáfu sér það. Því er búið að bíða lengi eftir að styrkja kerfið.

Varðandi óljósa hagsmuni. Fyrst hv. þingmaður kom inn á Reykjavíkurflugvöll, held ég að benda megi á skýrslu Þorgeirs Pálssonar varðandi Reykjavíkurflugvöll og þjóðaröryggismál sem tengjast því að hafa varaflugvöll fyrir landið, ástæðuna fyrir því að tveir flugvellir þurfa að vera á suðvesturhorni landsins; til að tryggja öryggi og síðan sjúkraflug í landinu. Hvað er óljóst við þá hagsmuni sem snúa að sjúkraflugi í landinu og mikilvægi varaflugvalla?