skipulagslög.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir síðara andsvar. Varðandi svæðisbundna kerfið er ég svo sem ekki vel heima. Við höfum kynnt okkur umsagnir sem bárust. Umsögn Landsnets kemur t.d. ekkert inn á þennan hátt. Nú hefur verið fjallað dálítið um að dreifikerfið fari í auknum mæli í jarðstrengi og þess vegna höfum við kannski ekki fjallað svo mikið um þetta.
Varðandi grunninnviði og þjóðaröryggismál eru það mikilvæg atriði. Hv. þingmaður spyr um skoðun mína og míns flokks. Við í Samfylkingunni leggjum ríka áherslu á að virða beri sjálfsákvörðunarrétt og sjálfstæði sveitarfélaga. Samvinna ríkis og sveitarfélaga er mikilvæg á margvíslegum sviðum og varðandi grunninnviði líka. Ég held að verkefni komandi missera sé að setjast yfir þetta með mjög vönduðum hætti og fjalla um það. Við erum með í deiglunni frumvörp og hugsanlega frumvörp í smíðum sem lúta að sameiginlegum sjóðum okkar sem eru landið og umhverfi þess sem við þurfum að gæta vel að og búa þar vel um hnútana. Það verður æ meira knýjandi að þarna sé unnið markvisst og af framsýni og fagmennsku.