151. löggjafarþing — 79. fundur,  15. apr. 2021.

kostnaður við liðskiptaaðgerðir.

[13:06]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Herra forseti. Hæstv. ráðherra talaði af skynsemi. Ég get verið sammála greiningu hans hér eins og ég var sammála mörgum góðum fullyrðingum hans í fyrrnefndu viðtali. En þetta viðtal, þar sem hæstv. ráðherra hljómar mjög eins og hann gerir nú, var tekið í nóvember 2019. Þá lagði ráðherrann áherslu á að þetta væri ekki ástand sem hægt væri að una við, sætta sig við ár eftir ár. Hvers vegna verður ekki breyting á? Hvers vegna er, að því er virðist, áframhaldandi fjandskapur gagnvart þeim sem eru sjálfstætt starfandi í heilbrigðisþjónustu og þjónusta almenning á kostnað ríkisins? Er þetta ekki einfaldlega afleiðing af því að a.m.k. hluti ríkisstjórnarinnar sættir sig ekki við að kaupa þjónustu af sjálfstætt starfandi stofnunum á heilbrigðissviði á Íslandi og vill þá frekar eyða meiri peningum í að kaupa slíka þjónustu af sams konar stofnunum erlendis?