151. löggjafarþing — 79. fundur,  15. apr. 2021.

vöxtur skuldasöfnunar.

[13:10]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég tel að það sé röng lýsing á áherslum ríkisstjórnarinnar í fjármálaáætlun að segja að öll áhersla sé lögð á að stöðva skuldasöfnunina. Nær væri að segja: Öll áherslan er á að beita ríkisfjármálunum af krafti á næstu árum til að veita viðspyrnu. Við erum með methalla á ríkissjóði á þessu ári. Við verðum með umtalsverðan halla á næsta ári og gríðarlegan uppsafnaðan halla á áætlunartímabilinu. Með þessu er ekki hægt að segja annað en að það sem einkenni áætlunina sé að ríkisfjármálunum verði beitt af fullum krafti. Þegar maður tekur slíka ákvörðun verður maður á sama tíma að getað svarað því, og um það var sérstaklega mikið spurt af Alþjóðagjaldeyrissjóðnum í nýlegri heimsókn til Íslands: Hvernig sérðu fyrir þér að þessu tímabili ljúki? Hvenær ætlarðu að hætta að beita ríkisfjármálunum af miklum krafti? Við sjáum fyrir okkur að ekki sé ábyrgt annað en að stöðva halla og ná frumjöfnuði á áætlunartímabilinu, en engu að síður verður áfram halli á ríkisfjármálunum.

Ég spyr mig að því þegar menn gagnrýna þessa sýn og tala fyrir því að við séum með meiri halla og söfnum meiri skuldum: Hvað á að gera við þessa peninga? Nú er það svo að okkur tókst að halda sterkri eftirspurn á Íslandi á síðasta ári. Okkur tókst að verja kaupmátt heimilanna. Við höfum séð að á þessu ári hefur kaupmáttur heimilanna og kaupmáttur ráðstöfunartekna ekki áður verið hærri. Hvað er það sem talsmenn aukinna skuldasöfnunar boða? Er það sem sagt (Forseti hringir.) að við eigum að ráða opinbera starfsmenn fyrir öll störfin sem töpuðust í einkageiranum eða á einfaldlega að hækka alla bótaflokkana? Á að gera það varanlega eða á að gera það tímabundið? Hvað er verið að boða?