151. löggjafarþing — 79. fundur,  15. apr. 2021.

breytingar í heilbrigðisþjónustu.

[13:18]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Það sem hv. þingmaður nefnir hér eru nokkur viðkvæm stór mál sem ekki hefur endanlega fengist botn í. Við getum nefnt í því sambandi þá viðkvæmu stöðu að sjúkraþjálfarar eru með lausa samninga og ég verð að leyfa mér að binda vonir við að það náist samningar þar, að það náist samstaða um áherslur um nýja samninga. En sjúkraþjálfarar og tannlæknar eru einmitt kristaltær dæmi þess að ríkið getur haft svo mikinn ávinning af góðu samstarfi við þá sem starfa utan opinbera heilbrigðiskerfisins, að jafnvel þó að ríkið fjármagni þjónustuna sé hægt með samningum að leysa það hvernig þjónustan er innt af hendi.

Heilsugæslan er annað dæmi. Nýlegar breytingar fyrir fáum árum síðan, þar sem við vorum að bjóða út heilsugæslustöðvar eru enn eitt dæmið. Það er ekki nauðsynlegt að ríkið eigi og stundi reksturinn sjálfan á heilsugæslustöðvum þótt við fjármögnun þjónustuna. Ég tel að við höfum enn ekki farið nægilega vel ofan í saumana á öllum þeim ávinningi sem við höfum uppskorið af kerfisbreytingunni sem þáverandi heilbrigðisráðherra, Kristján Þór Júlíusson, leiddi í gegn sem er að láta fjármagnið fylgja fólki. Ég held að við eigum enn mjög mikið ósótt þar. Þannig að þegar spurt er hvort ég telji það vera til framdráttar að samningar séu ófrágengnir o.s.frv., þá er ég auðvitað ekki þeirrar skoðunar. Ég er þeirrar skoðunar að hér í þinginu sé allt of oft sáð fræjum tortryggni vegna einkaframtaks í heilbrigðisþjónustu. Ég er þeirrar skoðunar að það sé á sama tíma allt of lítil krafa frá þinginu á (Forseti hringir.) aukna framleiðni í opinbera hlutanum og að við eigum eftir að taka miklu nákvæmari umræðu um þá stöðu.