breytingar í heilbrigðisþjónustu.
Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin og tek hjartanlega undir það sem kom fram í lokin um að við þurfum betri umræðu um þessa stöðu. Ég vildi óska að við stæðum hér í upphafi kjörtímabils en ekki í lokin vegna þess að staðreyndin er sú að farið hefur verið í miklar breytingar. Það er hárrétt að samningar séu ekki til staðar og í gangi viðkvæmar samningaviðræður. En það er líka ósköp auðvelt að fela sig á bak við það ef ekki er vilji hjá samningsaðilum til að klára málin þannig að hægt sé að halda samningsmálum í uppnámi eins lengi og kaupandi þjónustunnar vill, ef út í það er farið.
Það er alveg hárrétt hjá hæstv. ráðherra að ýmislegt sem gert var í málefnum heilsugæslunnar í tíð ráðherra Sjálfstæðisflokksins var vel gert en ekki hefur verið farið nægilega vel ofan í saumana á þeim ávinningi sem vinnan með að láta fjármagn fylgja sjúklingi fól í sér.
Spurning mín er eiginlega líka og ekki síður sú: (Forseti hringir.) Hefur í tíð þessarar ríkisstjórnar verið farið ofan í saumana á kostnaði eða mögulegum ávinningi við þær breytingar sem þessi ríkisstjórn hefur unnið að (Forseti hringir.) á kerfi og fyrirkomulagi heilbrigðiskerfisins?