fé til að útrýma sárafátækt.
Virðulegi forseti. Það er alltaf dálítið snúið að taka einstök dæmi eins og hv. þingmaður nefnir. Maður vill skilja hvað er á bak við. Maður vill skilja hverjar tekjurnar eru, hverjir tekjustraumarnir eru, hvort viðkomandi sé virkur á atvinnumarkaði eða ekki. En ég get nefnt eitt dæmi hér; að fyrir einstætt foreldri með tvö börn þá hafa breytingar á barnabótum í tíð þessarar ríkisstjórnar styrkt stöðu einstæðs foreldris með 300.000 kr. í tekjur á mánuði um meira en 100.000 kr. á ári. Það eru 100.000 kr. viðbótarbarnabætur á ári bara vegna breytinganna sem við í þessari ríkisstjórn höfum verið að gera. Þetta skiptir máli. Ef hv. þingmaður vill mæla það í hafragrautsskálum eru þetta margar hafragrautsskálar.