opinber stuðningur við nýsköpun.
Herra forseti. Það er eðlilegt að styðja opinberan stuðning við nýsköpun. Það versta er að þetta frumvarp gerir það ekki. Þetta frumvarp dregur úr opinberum stuðningi við nýsköpun. Allt það ferli sem við höfum horft upp á í þessu máli er á einn veg: Verið er að valda skaða af óljósum ástæðum. 45 umsagnir bárust í samráðsgátt stjórnvalda. Tvær af hverjum þremur voru neikvæðar. 30 umsagnir bárust um þetta mál til Alþingis, tvær af hverjum þremur voru neikvæðar. Mikið hefur verið bent á að þetta er ótrúlega lélegt frumvarp. Það mun valda skaða og er reyndar þegar búið að valda skaða og auðvitað eigum við ekki að styðja svona fásinnu.