151. löggjafarþing — 79. fundur,  15. apr. 2021.

barnalög.

11. mál
[13:58]
Horfa

dómsmálaráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. allsherjar- og menntamálanefnd fyrir vinnu við þetta mikilvæga frumvarp. Um langa hríð hefur kerfið ýtt undir mismunandi stöðu foreldra sem ala börn upp í fullkominni sátt og ýtir þar undir ágreining sem þarf ekki að vera þar sem annað foreldrið er í mun betri stöðu varðandi upplýsingar um barn sitt, aðgang að ýmsu og hitt er ekki einu sinni ekki skráð sem foreldri. Með þessu erum við að breyta því og gera kleift að skrá heimili á tveimur stöðum. Kerfið þarf að vera til fyrir öll mynstur fjölskyldna og má ekki þvælast fyrir þegar sú ákvörðun hefur verið tekin í sátt beggja aðila að deila ábyrgð og uppeldi. Það var alltaf hugsunin að það þyrfti tíma eftir að frumvarpið yrði samþykkt til að breyta hinum ýmsu reglugerðum í kjölfarið svo það þjónaði öllum fjölskyldum og öllum börnum þegar það eru hagsmunir barns að hafa heimili hjá báðum foreldrum. Þess vegna er gildistíminn ekki fyrr en um næstu áramót, svo hægt sé að ganga úr skugga um slíkt eins og alltaf var að stefnt áður en lögin taka gildi.