151. löggjafarþing — 79. fundur,  15. apr. 2021.

barnalög.

11. mál
[13:59]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Virðulegur forseti. Ég vil fagna því að þetta mál sé nú að komast í höfn. Löggjafinn er vitaskuld ekki að finna hér upp nýtt form en er loksins að veita því þá viðurkenningu sem það á skilið. Ég kem hingað upp til að nefna það sérstaklega að ég er ánægð með að það skyldi hafa náðst í gegn, eftir dálítinn núning, að fara í vinnu þar sem þrjú ráðuneyti fá tímalínu um að bæta úr því sem upp á vantar í þessu frumvarpi, varðandi það að tryggja að börn í þessum fjölskyldugerðum geti notið jafnræðis á við önnur börn, með því að tryggja þeim þann búnað, tækjabúnað eftir atvikum, og aðstoð sem þau þurfa á að halda á báðum heimilum. Það er sem sagt alveg skýrt af hálfu löggjafans núna að úr því þarf að bæta og verður gert áður en lögin taka gildi.