breyting á ýmsum lögum um skatta og gjöld .
Virðulegi forseti. Þetta mál er ekki stórt í sniðum, það fer ekki mikið fyrir því. En það varðar alveg gríðarlega mikilvægan þátt í samfélagi okkar, sem er framlag sjálfboðaliða og annarra þeirra sem hafa helgað almannaheillastarfsemi í landinu ýmist alla starfskrafta sína eða að verulegu leyti. Með þessu frumvarpi er þingið í fyrsta skipti í langan tíma að senda mjög skýr skilaboð og segja: Við kunnum að meta það sem þið eruð að gera. Það er mikils virði fyrir íslenskt samfélag. Við erum að segja við þá sem vilja leggja öllum þessum aðilum, í fjölbreyttri starfsemi, lið: Við viljum sýna því skilning. Við ætlum ekki að taka allar krónurnar í gegnum ríkissjóð og deila þeim aftur út. Við viljum treysta fólkinu í landinu til að ákveða hvaða almannaheillastarfsemi, mannúðarstarf, íþrótta- og æskulýðsstarf það vill styðja. Við erum líka, fyrir utan allt það og til viðbótar, að segja við fyrirtækin: Við gerum ráð fyrir því að þið ætlið að standa með þessari starfsemi í landinu. (Forseti hringir.) Við erum tilbúin til að veita skattafslátt. Nú þurfa fyrirtækin að stíga fram og stíga stærri skref en til þessa.