151. löggjafarþing — 79. fundur,  15. apr. 2021.

trúnaður um skýrslu.

[14:52]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Það er yfirleitt að gefnu tilefni og heyrir til undantekninga að í málum sem þingið tekur til umræðu sé óskað eftir trúnaði um tíma. Hæstv. forseti þingsins hefur farið hér ágætlega yfir þær reglur sem um þetta gilda og það samkomulag sem gert var milli þings og ríkisendurskoðanda að gefnu tilefni. Ég held að við þurfum að breyta verklaginu, virðulegur forseti, sérstaklega eftir að við höfum séð þingmenn koma hér upp hvern á fætur öðrum og gera grein fyrir því að þetta sé bundið einhvers konar geðþóttaákvörðunum einstakra þingmanna eða að þetta sé svo ruglingslegt að menn nái ekki að halda utan um þetta. Auðvitað endurspeglast þetta í því að það er frekar orðin regla en undantekning, virðulegur forseti, að þau mál sem hér eru bundin trúnaði tímabundið leki í fjölmiðla. Það er orðin ansi algeng regla og á þessu hefur orðið mikill misbrestur frá því sem áður þekktist hér á þingi þó að ekki væri það án undantekninga. Ég legg til að við endurskoðum verklagið. Það er einfaldlega þannig, og endurspeglast ágætlega í umræðunni, að mönnum er ekki treystandi hér.