151. löggjafarþing — 79. fundur,  15. apr. 2021.

trúnaður um skýrslu.

[15:04]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Þetta er eiginlega mín uppáhaldsumræða, það hafa í raun allir rétt fyrir sér, það hafa allir eitthvað til síns máls. Það eru skiljanleg sjónarmið að við þingmenn viljum fá tækifæri til að fara yfir málin áður en við þurfum að svara fyrir þau, það skilja allir þau sjónarmið. Sama á við aðila úti í samfélaginu sem skýrslan beinist að og þess háttar, eins og hæstv. ráðherra talar um. Það er mjög skiljanlegt. En við þurfum að passa okkur aðeins á því hversu vítt þetta hugtak um trúnað er. Það er ekkert rosalega vítt í þessu samhengi. Eins og sagt hefur verið mun skýrslan hvort eð er verða gerð opinber og efni hennar varðar tvímælalaust almannahag. Slíkur er alvarleiki þessa leka, sama hvaðan hann kom, bara til að hafa það í huga. Þetta er ekki alvarlegur leki á gögnum, alls ekki, þetta er ekki einu sinni nálægt því. Þannig að trúnaður í þessu tilviki er ekkert rosalega merkilegur þegar allt kemur til alls. En samt hafa allir rétt fyrir sér í þessari umræðu (Forseti hringir.) og það eru að mínu mati skemmtilegustu umræðurnar, þegar við erum að glíma við sameiginleg atriði sem við erum sammála um.