151. löggjafarþing — 79. fundur,  15. apr. 2021.

trúnaður um skýrslu.

[15:06]
Horfa

Ásmundur Friðriksson (S):

Virðulegur forseti. Ég geri mér nú yfirleitt ekki far um að taka þátt í þessum dagskrárlið eða kem hér upp, en ég get ekki orða bundist núna. Mér finnst það einkennilegt þegar hér koma þingmenn Samfylkingarinnar upp og reyna að gera lítið úr því að trúnaður skipti máli. Hér er jafnvel sagt að trúnaður sé einhvers konar mekanismi. Trúnaður er mælikvarði á traust. Það ættum við að temja okkur. (Gripið fram í: Þú ættir að vita það.)