151. löggjafarþing — 79. fundur,  15. apr. 2021.

fiskeldi.

265. mál
[16:18]
Horfa

Haraldur Benediktsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég ætla ekki að segja annað en það sem ég reyndi að rekja í ræðu, að það var þá þessi pólitíska niðurstaða að færa skurðpunktinn til frá því frumvarpi sem ráðherra lagði fram og nefndin náði síðan saman um. Ég ætla ekki að segja að það hafi verið mistök. Hins vegar höfum við oft tekið þátt í því, þingmenn Norðvesturkjördæmis, þar á meðal hv. þm. Bergþór Ólason, að þurfa að reifa þessi mál við íbúa þar fyrir vestan, eigendur þessa fyrirtækis og fleiri. Ég ætla að ganga svo langt að segja að kannski hafi ekki allir verið fullkomlega meðvitaðir um þær breytingar og hvernig ætti að vinna úr þeim. Þá ætla ég ekki að segja það halli meira á þingið heldur en aðra sem þurftu að vinna við löggjöfina.

Að öðru leyti hvort þessi viðbrögð okkur núna séu til þess að laga mistök. Nei, ég ætla ekki að segja það en þau eru til komin vegna m.a. umsagnar frá Ísafjarðarbæ sem var mjög skýr og skorinorð og benti á að það þyrfti að horfa til frumkvöðla á þessu sviði. Framsögumaður rakti í andsvari áðan hversu vandrataður stígur það væri að skilgreina frumkvöðla þannig að þetta yrði ekki með einhverjum hætti sértæk aðgerð. En það var vissulega vilji nefndarinnar á sínum tíma þegar löggjöfin var sett að horfa til frumkvöðla með ákveðnum hætti þó að það hafi ekki verið leyst úr. Þá getum við sagt að hér gerum við þá alla vega viðbragð við því sem þar fór úrskeiðis og ég held að lengra sé ekki hægt að ganga í þeim efnum án þess að við séum með beinum hætti að ganga erinda einhverra sérstakra fyrirtækja.