fiskeldi.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Haraldi Benediktssyni svarið. Varðandi það sem hv. þingmaður nefndi í lokin, að þingið og atvinnuveganefnd yrðu að gæta þess að vera ekki að ganga erinda einhvers tiltekins fyrirtækis heldur verði löggjöfin að vera almenns eðlis, þá langar mig til að spyrja hvort hv. þingmaður geti upplýst mig um hvort það var kallað eftir því af nefndinni hvaða áhrif þessi lagabreyting, frumvarpið eins og það liggur fyrir með breytingartillögu nefndarinnar, hefði á einstök fyrirtæki sem eru að störfum í dag og hvort það varð einhver umræða um það í hv. atvinnuveganefnd að kallað hafi verið eftir upplýsingum um hvaða áhrif til að mynda færsla skurðpunktsins á sínum tíma hafi haft á einstök fyrirtæki þá. Ég held því til haga að ég veit að hv. þingmaður var ekki fulltrúi í atvinnuveganefnd þar. Ég er að velta því upp hvort það atriði hafi verið rætt aftur núna við umræðu um þetta mál sem virðist af lýsingunum að dæma hafa verið yfirgripsmikil í nefndinni. Þess vegna leikur mér hugur á að spyrja um þetta.