151. löggjafarþing — 79. fundur,  15. apr. 2021.

fiskeldi.

265. mál
[16:24]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Virðulegur forseti. Ég vil í þessari umræðu byrja á að taka upp þráðinn þar sem hv. þm. Haraldur Benediktsson skildi við hann rétt í þessu í seinna andsvari sínu við mig. Við erum auðvitað með einum eða öðrum hætti daginn út og daginn inn að eiga við hagsmuni sem speglast á endanum yfir á einstök fyrirtæki þannig að ég held að þingnefndum sé hollt að kalla eftir upplýsingum og reyna að átta sig á hvaða áhrif lagasetning hefur. Síðan er bara sjálfstætt atriði, og það kallar á styrk nefndarmanna eftir atvikum ef mál eru þannig vaxin, að taka síðan ákvarðanir, en við þingmenn eigum að taka ákvarðanir með galopin augun þannig að við séum búin að átta okkur á hvaða áhrif lagasetning hefur.

Það er nauðsynlegt í þessu samhengi að rifja upp lagasetninguna á sínum tíma þar sem mörgum þótti blasa við að þingið væri að gera mistök og sérstaklega með þeirri þróun sem varð á málinu í meðförum atvinnuveganefndar og þeirri tilfærslu á skurðpunkti sem átti sér stað hvað gildi leyfaumsókna varðar. Það blasir við að þetta frumvarp hér er í meginatriðum viðbrögð við þeim gloppum sem þar urðu eftir. Ég fagna því að atvinnuveganefnd sé að klára þetta mál og skila því inn til þingsins og það sé komið í 2. umr. Á sama tíma vil ég gagnrýna það hversu opið og óljóst þetta er, a.m.k. varðandi þau tvö atriði sem ég nefndi sérstaklega í andsvari við framsögumann, annars vegar að afmarka betur hvernig ráðherra geti ákveðið lágmarksverð og hins vegar að skilgreina þurfi betur frumkvöðlarétt í lagatextanum og hvert sé síðan innbyrðis vægi matsþátta. Það eru engin sérstök skilaboð í því fólgin að sjötta matsþættinum sé bætt við þá fimm sem fyrir eru í frumvarpinu ef engin skilaboð eru innifalin til ráðherrans um það með hvaða hætti mat skuli lagt þar á. Og bara til upprifjunar, vegna andsvars hv. þm. Höllu Signýjar Kristjánsdóttur við hv. þm. Sigurð Pál Jónsson, þá virðist hv. þm. Halla Signý Kristjánsdóttir misskilja fullkomlega hvert kjarnaatriðið er í gagnrýni okkar hvað þetta varðar. Ég bara skora á hv. þm. Höllu Signýju Kristjánsdóttur að hlusta andaktug á ræður mínar og hv. þm. Sigurðar Páls Jónssonar hér á eftir og ná utan um skilaboðin sem í þeim felast.

Ég vil fagna því að fram hafi komið tillaga frá nefndarmanni um að málið gangi til nefndar milli 2. og 3. umr. því að það er alveg sjálfsagt mál, þykir mér, að atvinnuveganefnd reyni að leiðbeina sjávarútvegsráðherra með ígrundaðri og dýpri hætti en hér er gerð tilraun til að gera. Eins og ég taldi upp í andsvari mínu við hv. framsögumann áðan þá eru fimm atriði tilgreind í lögunum að komi til skoðunar við mat á tilboði. Það er í fyrsta lagi upphæð tilboðs, í öðru lagi reynsla af fiskeldisstarfsemi, í þriðja lagi fjárhagslegur styrkur, í fjórða lagi mælikvarðar sem mæla hvernig tilboðsgjafi hefur stundað rekstur sinn og í fimmta lagi upplýsingar um það hvernig tilboðsgjafi hyggst stunda rekstur sinn, m.a. út frá umhverfissjónarmiðum. Síðan bætist við það atriði sem snýr að því að litið verði til frumkvöðla á þeim svæðum sem frumvarpið tekur til. Þar er atriði sem ég vildi nefna sérstaklega vegna þess að fulltrúi í atvinnuveganefnd, hv. þm. Halla Signý Kristjánsdóttir, fór í andsvar við hv. þm. Sigurð Pál Jónsson áðan þar sem hv. þingmaður virtist reyna að setja fram þá skoðun að lagasetningin yrði að vera með svo almennum hætti að ekki væri hægt að heimfæra hana upp á tiltekin svæði landsins. En það er nú bara beinlínis gert ráð fyrir því í frumvarpinu. Í nefndarálitinu segir að við meðferð málsins hafi verið bent á, með leyfi forseta, „að mikilvægt væri að litið væri til frumkvöðla á þeim svæðum sem frumvarpið tekur til“. Það er beinlínis í frumvarpinu verið að tala um tiltekin svæði. Svæðin eru hér, ef ég les bara upp úr nefndarálitinu: Arnarfjörður, Berufjörður, Fáskrúðsfjörður, Reyðarfjörður, Ísafjarðardjúp og Önundarfjörður. Það er auðvitað verið að tala um tiltekin svæði. Þetta er ekki svo opin lagasetning og laus við tengingu við tiltekin svæði að við séum hér að horfa til þess að Borgarfjörðurinn verði undir eða Húnaflóinn. Ég vildi bara halda þessu til haga. Ég skildi hreinlega ekki alveg þau sjónarmið sem hv. þm. Halla Signý Kristjánsdóttir setti fram áðan.

Svo ég komi aðeins að lágmarksverðinu aftur þá er gert ráð fyrir því í frumvarpinu að stuðst verði við lágmarksverð, samanber 3. mgr. 4. gr. a fiskeldislaganna, en nefndin leggur síðan til breytingu og vísar til þess að lágmarksverð skuli ákvarðað á grundvelli hlutlægra og málefnalegra forsendna sem taka mið af íslenskum aðstæðum og gjaldaumhverfi. En það er bara ekki fjallað um hvað þetta þýðir nákvæmlega. Það væri til mikilla bóta ef lágmarksverðið yrði skilgreint betur með hlutlægum hætti og afmarkað í lögum í stað þess að fela ráðherra jafn víðtækt vald og raun ber vitni.

Ég ætla ekki að hafa þetta langt í dag en varðandi frumkvöðlaréttinn þá færi án nokkurs vafa betur á því að hann væri betur skilgreindur í lögunum. Það er hægt að hafa ýmsar tilvísanir, ýmis viðmið og parametra í huga í þeim efnum. En eins og þetta er lagt fram þar sem þessu sjötta matsatriði er bara bætt við þau fimm sem fyrir eru — í því felst engin leiðbeining önnur en sú að hv. atvinnuveganefnd telur að þessi sjötti matsþáttur eigi að koma inn í púllíuna með þeim fimm sem fyrir eru. Þarna þarf hv. atvinnuveganefnd að senda skýrari skilaboð til sjávarútvegsráðherra. Sem dæmi má nefna að það væri algjörlega óljóst hvernig ætti að meta tvö tilboð þar sem annað tilboðið kveður á um háa fjárhæð en enga rekstrarsögu á svæðinu en hitt tilboðið er frá aðila sem hefur stundað sjókvíaeldi á svæðinu í lengri tíma en býður lægri fjárhæð. Það eru atriði eins og þetta sem mér þykir bara alveg sjálfsagt að atvinnuveganefnd formi sér skoðun á, komi sér upp rökstuddu áliti. Ef raunin er sú, eins og lýst var áðan, að heildarmálið hafi verið afgreitt í jafn mikilli sátt og m.a. hv. þm. Halla Signý Kristjánsdóttir lýsti hér áðan, og ef ekki allir þá flestir nefndarmenn á nefndarálitinu þegar málið gekk til 2. umr. — með eða án fyrirvara, ég man það ekki — en hvað þetta nefndarálit varðar þá er enginn á því nema fulltrúar ríkisstjórnarflokkanna, enginn. Annaðhvort bendir það til þess að ósætti hafi verið í nefndinni eða að málið hafi verið tekið út í einhverjum flýti þannig að fulltrúar minni hlutans hafa ekki talið sig fá forsvaranlega aðkomu til að koma sjónarmiðum sínum fram. En ég fagna því að það tækifæri gefst hér milli 2. og 3. umr. og ég vona að hv. atvinnuveganefnd taki þeirri áeggjan vel að veita hæstv. sjávarútvegsráðherra fyllri leiðbeiningar en gert er í því nefndaráliti sem nú liggur fyrir og óska atvinnuveganefnd alls hins besta við það að færa málið til betri vegar en nú er orðið.