151. löggjafarþing — 79. fundur,  15. apr. 2021.

lax- og silungsveiði.

345. mál
[16:44]
Horfa

Frsm. minni hluta atvinnuvn. (Ólafur Ísleifsson) (M):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir áliti minni hluta um það frumvarp sem er til umræðu, um breytingu á lögum um lax- og silungsveiði þar sem aðaláherslan er á minnihlutavernd. Við erum tveir sem stöndum að þessu áliti, fulltrúar Miðflokksins í hv. atvinnuveganefnd, við hv. þm. Sigurður Páll Jónsson. Ég vil segja það almennt að ég tel að lög um lax- og silungsveiði séu í flokki laga sem hafa ákveðna þýðingu af svolítið sérstöku tagi. Þetta eru lög sem hvíla á gömlum grunni, eins og hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson lauk framsöguræðu sinni á að segja. Ég tek undir með honum og vil lýsa því viðhorfi að lög af þessu tagi, sem eru kannski ekki um atriði eða efni þar sem fólk skiptir sér í ólíkar stjórnmálalegar fylkingar, þarf að umgangast af mikilli varfærni og með virðingu. Þá sérstaklega vil ég leyfa mér að segja að ég tel að leitast eigi við að breytingar á slíkum lögum séu gerðar í sem víðtækastri sátt og með sem breiðustum stuðningi á Alþingi.

Það er rakið hér í áliti minni hluta að á tveimur þingum hefur þetta mál tekið gagngerum breytingum, a.m.k. í tvígang, og ekkert nema gott um það að segja. Þetta mál er viðkvæmt og vandmeðfarið. Við vekjum hins vegar athygli á því í áliti okkar að frumvarpið, eins og það liggur fyrir, hafi ekki verið kynnt í samráðsgátt í ljósi þeirra breytinga sem hafa orðið á því frá því að það var lagt fram á síðasta löggjafarþingi. Þetta eru mjög miklar breytingar.

Þá vil ég nefna að þannig stendur á að það eru einungis fulltrúar ríkisstjórnarflokkanna sem standa að áliti meiri hluta. Ég vil fyrir mitt leyti, og ég held ég mér sé óhætt að segja það fyrir hönd okkar fulltrúa Miðflokksins í nefndinni, að okkur þótti fullhraustlega að verki staðið þegar málið var tekið út úr nefnd, eins og það heitir á alþingisíslensku, vegna þess að þá höfðu nýlega komið fram sjónarmið á fundi nefndarinnar frá gestum sem mætti segja að hefðu að skaðlausu mátt fá meiri umræðu á vettvangi nefndarinnar. Þá er ég að vísa sérstaklega til umsagnar Veiðifélags Árnesinga sem er eitt af stærstu veiðifélögum landsins. Við gerum að umtalsefni í minnihlutaáliti okkar að í þeirri umsögn og með mjög kraftmiklum hætti á fundi nefndarinnar er gerð mjög alvarleg athugasemd við bótaákvæði í 5. gr. frumvarpsins. Ég skal ekki rekja það, það er gert ítarlega í minnihlutaáliti okkar, um hvað er að tefla í því sambandi, hvaða álitaefni eru uppi, en við sem skipum minni hlutann hefðum talið fullt tilefni til að ræða þessi sjónarmið frekar í nefndinni.

Þá er annað efnisatriði sem ég vildi gera að umræðuefni og það er að 3. gr. frumvarpsins felur í sér tillögu um að breyta reglum um skipun nefndarmanna í matsnefnd. Þá er ég að tala um frumvarpið en ekki breytingartillögu meiri hlutans, sem var skýrð hér ágætlega af framsögumanni meiri hlutans áðan, heldur er ég að gera að umtalsefni hæfisskilyrði og hverjir tilnefna í matsnefnd. Samkvæmt gildandi lögum er matsnefnd skipuð þremur fulltrúum. Ráðherra skipar einn án tilnefningar og Hæstiréttur tilnefnir annan og skulu þeir báðir uppfylla hæfisskilyrði til að gegna embætti héraðsdómara. Síðan tilnefnir Landssamband veiðifélaga þriðja manninn. En hér liggur fyrir frumvarp þar sem gerð er tillaga um að horfið sé frá því að Hæstiréttur tilnefni mann heldur skal skipa mann samkvæmt ábendingu Hafrannsóknastofnunar og það virðist vera fallið alveg frá því skilyrði sem er í gildandi lögum um að þessir tveir uppfylli hæfisskilyrði til að vera héraðsdómarar.

Nú er það þannig að aðild að veiðifélagi er lögbundin þannig að gera verður miklar kröfur til þeirra sem skipa matsnefnd sem eru falin ýmis verkefni og sem eru að auki falin ný verkefni með frumvarpinu sem hér liggur fyrir. Þess vegna er erfitt að sjá tilefni eða tilgang með því að gera breytingu sem felst í því að veikja hæfiskröfur til að sitja í þessari nefnd. Við í minni hlutanum teljum að þessi tillaga í 3. gr. frumvarpsins sé ekki rökstudd með fullnægjandi hætti. Þess vegna höfum við hv. þm. Sigurður Páll Jónsson leyft okkur að leggja til þá breytingu að 3. gr., eins og hún kemur fram í frumvarpinu, þ.e. a-liður hennar sem felur það í sér sem ég hef nú rakið, falli brott úr frumvarpinu og að ekki verði dregið úr kröfum til þeirra sem skipa þessa nefnd og að Hæstiréttur hafi áfram það hlutverk að tilnefna einn mann en ekki Hafrannsóknastofnun.

Ég leyfi mér að ítreka það sjónarmið að það er mikilvægt að breytingar á mikilvægum lögum eins og þessum séu gerðar í víðtækri sátt og með sem breiðustum stuðningi á Alþingi.

Herra forseti. Ég óska eftir því í ljósi þess sem hér hefur komið fram að málið verði tekið fyrir að nýju í hv. atvinnuveganefnd á milli 2. og 3. umr. til að ræða þau atriði sem ég hef gert hér að umtalsefni og eftir atvikum önnur atriði. Ég ætla að leyfa mér að ljúka máli mínu með því að lýsa þeirri von að tillögu okkar hv. þm. Sigurðar Páls Jónssonar, um að hæfiskröfur verði óbreyttar við skipun í matsnefnd, verði vel tekið á vettvangi atvinnuveganefndar. Ég leyfi mér að vona í ljósi þeirra ástæðna sem við nefnum, þ.e. að aðild að veiðifélagi er lögskyld, og mikilvægt að fullnægjandi réttaröryggi sé tryggt við málsmeðferð og meðferð mála á vettvangi matsnefndar, að nefndin geti sameinast um að fallið verði frá 3. gr. í frumvarpinu sem gerir ráð fyrir breytingu í þessu sem við álítum að sé ekki þarfleg tillaga.