151. löggjafarþing — 79. fundur,  15. apr. 2021.

lax- og silungsveiði.

345. mál
[17:09]
Horfa

Haraldur Benediktsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Páli Jónssyni fyrir andsvarið og get sömuleiðis vitnað til um hvernig nýting laxveiðihlunninda í Borgarfjarðarhéraði og víðar hefur breyst í gegnum árin sem sýnir nú kannski þróun nýtingar á þessum hlunnindum. Ég ætla að taka það fram líka að þó að ég hafi nefnt jarðasöfnun sem ástæður lagasetningar 1923 þá voru það í eðli sínu ekki slæmir eigendur sem þar voru. Þeir byrjuðu á því að kaupa og friða á sínum tíma, alla vega í einu tilfelli sem ég þekki ágætlega til vestur á Snæfellsnesi.

Ég held að ég geti ekki svarað hv. þingmanni því hvenær ég telji að taka þurfi lögin upp aftur með tilliti til þeirrar breytingar sem við erum að ræða hér. Jafnvægiskúnstin í þessu er að við séum með lagatextann þannig að hann hlaði ekki undir það sem við getum kallað minnihlutaeinræði. Það er jafnvægislistin sem hv. þingmaður og aðrir í atvinnuveganefnd hafa verið að glíma við á undanförnum árum, að ganga ekki þannig frá málum að lagabreytingin færi minni hlutanum slík völd að hann geti haldið öllu í járnum og torveldað með óeðlilegum hætti í krafti síns minni hluta eignarrétt þeirra sem fara með meiri hluta í veiðifélögum. Ég verð að segja, sem svar við spurningu hv. þingmanns, að ég sé ekki hvenær við þurfum að taka það upp. En aftur á móti er svarið: Já, ég held að það skref sem við erum að stíga núna sé það skref sem við þurfum á að halda á þessu stigi og ég er mjög ánægður með það.