lax- og silungsveiði.
Herra forseti. Ég ákvað að nýta mér rétt minn til seinna andsvars þótt spurningu hafi ekki verið beint til mín. Ég tek undir með hv. þingmanni þegar hann segir að þetta sé jafnvægislist þarna á milli mála. Ég var í, og ég segi þetta ótrúlega oft í ræðustóli Alþingis, öðru starfi 2004, var formaður Bændasamtaka Íslands á þeim tíma sem gerð var endurskoðun á löggjöfinni sem þá hafði að mestu staðið óbreytt frá 1923. Þá var jafnvægiskúnstin sú, eins og ég skildi umræðuna á þeim tíma, ég ætla ekki að segja að það hafi verið fullkomlega réttur skilningur, þetta sterka inngrip að skylda aðila til aðildar að veiðifélögum, sem er viðkvæmur hlutur. Þess vegna held ég að við verðum, í hvert sinn sem við ræðum um löggjöfina og breytum henni, að hafa í huga hversu mikið inngrip í eignarréttinn þetta er. En það er hins vegar enn mikið frelsi varðveitt í eignarhaldi á bújörðum á Íslandi og ég held að það sé mikilvægt að við varðveitum það og frelsi til að nýta gjafir náttúrunnar og hlunnindi jarðarinnar, þó að við höfum sett reglur um þau hlunnindi. Öllu frelsi verður líka að fylgja ábyrgð og ábyrgðin felst í því að ganga um þessa dýrmætu gjöf sem náttúran gefur af ábyrgð. Okkur hefur öðrum þjóðum fremur vil ég segja, alla vega þar sem ég hef tekið þátt í umræðu við bændur í nágrannalöndum okkar, tekist að varðveita þennan fiskstofn, laxinn, vel. Við höfum meira að segja gengið svo langt að efla hann á undanförnum árum og jafnvel ræktað upp nýjar ár. Þá er aftur spurning: Hvenær er fiskeldi og hvenær er um náttúrulegar aðstæður að ræða? En ég er sammála hv. þingmanni og vil bara að lokum segja: (Forseti hringir.) Við getum á hverjum tíma verið sammála um gildi löggjafarinnar en við verðum að ganga mjög varlega fram í því svo við séum ekki að halla á í þeim efnum þannig að samstaðan um hana gliðni meira en orðið er.