151. löggjafarþing — 79. fundur,  15. apr. 2021.

þjóðarátak í lýðheilsutengdum forvörnum.

555. mál
[18:40]
Horfa

Flm. (Willum Þór Þórsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Guðjóni S. Brjánssyni, sem er jafnframt meðflutningsmaður á þessu máli. Hann hefur sýnt því mikinn áhuga, lýðheilsu og þessum málefnum. Það er hárrétt sem hv. þingmaður kemur inn á, þetta hefur verið svolítið þannig í gegnum tíðina; falleg hugtök og mikill vilji, stakt átak hér og þar. Ég held að við höfum áttað okkur á því að fagþekkingu, upplýsingar og aðgengi fólks þarf að tryggja og það þarf að hjálpa fólki að taka ábyrgð á eigin heilsu. Við erum alltaf að átta okkur betur og betur á því, fyrir utan hversu mikilvægt það er að stuðla að bættri lýðheilsu. Ég fór ágætlega yfir rökin fyrir því, en lýðheilsa er fjölþætt hugtak, eins og hv. þingmaður kom inn á. Það snýr að andlegri, félagslegri og líkamlegri heilsu. En það hefur skort á þá heild meðan við höfum verið að ná utan um þetta og lesa okkur í gegnum rannsóknir sem staðfesta að þetta er ekki spurning um hvort við þurfum að bæta lýðheilsu heldur hvernig. Við höfum farið í stök verkefni í gegnum tíðina, Hjólað í vinnuna í gegnum vinnustaði, Heilsueflandi samfélag, og höfum verið að útfæra hugmyndafræðina. En ég met það þannig að við þurfum að taka höndum saman og fara í þjóðarátak og nýta þekkinguna alls staðar þar sem hún er, nýta íþróttahreyfinguna og ungmennafélögin sem þekkja þetta og kunna vegna þess að líkamleg hreyfing hefur það umfram andlega og félagslega þáttinn að hún dregur félagslega og andlega þáttinn fram.