151. löggjafarþing — 80. fundur,  19. apr. 2021.

lög um fjárfestingar erlendra aðila.

[13:26]
Horfa

dómsmálaráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir. Ég veit ekki betur en að þessi lög heyri ekki undir dómsmálaráðuneytið heldur einmitt atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra sem fer með þessi lög, málefnasviðið heyrir undir hana samkvæmt forsetaúrskurði. Hér er auðvitað farið yfir ýmislegt mikilvægt varðandi upplýsingaöflun í takt við njósnir og hvar þetta er geymt og annað. En af því að hv. þingmaður spyr sérstaklega um þessi lög þá verð ég nú að beina því til annars ráðherra þar sem málefnasvið dómsmálaráðuneytisins nær ekki yfir þessa löggjöf.